08.01.09
Jæja, krílin létu sjá sig 8. jan sl. um kl 18:30. Fæðingin gekk vel og heilsast öllum vel.
Fyrst kom stúlka um kl 18:27, 2795g og 48cm
Síðan kom dregur um kl 18:38, 2670g og 49cm. Tærnar komu fyrst og puttarnir síðast. Hann var svolítið blár fyrst en það jafnaði sig fljótt

Fleiri myndir og fréttir síðar þegar við komum heim.
p.s. Takk fyrir allar kveðjurnar
Smá mis... börnin eru 1kg þyngri en ég skrifaði fyrst. Þau fæddust 2795g og 2670g en ekki 1795g og 1670g eins og stóð fyrst á síðunni.
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Hvurnig væri nú að fara að dæla inn nýjum myndum?
Posted by Guðbjörg Kr., 18/01/2009 6:50pm (2 ár síðan)
-
Mikið eru þau yndisleg! Innilega til hamingju aftur.
Bestu kveðjur, Ída.Posted by Ída, 18/01/2009 2:18am (2 ár síðan)
-
Hvaða hvaða?? Eitt kg til eða frá, það skiptir nú ekki svo mikið;-)
Gangi ykkur vel. Kveðja frá Dk.Posted by Bóinn., 17/01/2009 6:15pm (2 ár síðan)
-
Til hamingju enn og aftur. Hlakka til að sjá fleiri myndir af þeim og heyra fréttir af ykkur.
Kær kveðja EllenPosted by Ellen María, 17/01/2009 4:39pm (2 ár síðan)
-
Til hamingju með litlu dúllurnar ykkar :) ....ég vissi´ða!!! ...alveg eins og ég var búin að segja, bæði kynin. Enn og aftur TIL HAMINGJU!!! :)
Knús og kossar
Posted by María, Mundi og börn, 13/01/2009 9:57pm (2 ár síðan)
-
Elsku besta Sóley Lára frænka og Birkir, hjartanlega til hamingju með litlu krílin ykkar, þau eru alveg yndisleg. Gangi ykkur sem allra best, risaknús frá okkur.
Posted by Harpa, Nonni og Haukur Atli, 13/01/2009 9:00pm (2 ár síðan)
-
Hamingju óskir með krýlin tvö, þetta er orðin myndarleg fjölskylda (búin að ná okkur). Sjáumst síðar. Bæ bæ.
Posted by Árni Steindór og fjölskylda., 13/01/2009 8:57pm (2 ár síðan)
-
Hjartanlega til hamingju með þessi fallegu börn. Það verður aldeilis kátt í höllinni fljótlega. Vona að allt eigi eftir að ganga eins og í sögu.
Bestu kveðjur
Sigga frá Smáragili og hennar fjölskylda.Posted by Sigfríður, 13/01/2009 10:19am (2 ár síðan)
-
Innilega til hamingju með krílin, þau eru glæsileg. Hlökkum til að sjá ykkur öll við fyrsta tækifæri.
Posted by Einar og Ósk, 13/01/2009 8:53am (2 ár síðan)
-
Elsku Sóley Lára mín og Birkir!
Til hamingju með litlu krílin þau eru auðvitað algjört æði. Hlakka til að sjá fleiri myndir.
Kær kveðja
ÁlfrúnPosted by Álfrún Sigurðardóttir, 12/01/2009 11:35pm (2 ár síðan)