2ja mánaða
Þá er komið fram í mars og tvíburarnir orðnir tveggja mánaða. Það er nú orðið nokkuð síðan að við skrifuðum inn seinast og ýmislegt búið að gerast.
Ég var farin að hlakka mikið til með að komast með börnin út að labba í vagninum en það var nú búið að vera ansi kalt í janúar og þau auðvitað enn svo lítil. En þau fóru út í göngutúr með okkur í fyrsta skipti 15. febrúar og er búið að rölta nokkuð síðan. Það eru margar skemmtilegar gönguleiðir hérna og örstutt að komast aðeins út fyrir þéttbýlið.
Við biðum auðvitað spennt eftir fyrsta brosinu, Júlía Huld brosti í fyrsta skipti 16. febrúar og Hilmar Atli 18. febrúar og var hann ekkert að spara brosið. Það er alveg af og til hægt að sprella svolítið við þau til að fá þau til að brosa enda bauð Þórey Arna okkur velkomin í félag fáranlegra foreldra - eða svo að segja því auðvitað er gert allt mögulegt til að laða brosin fram...
Fyrsti aðskilnaður systkinanna var 17. febrúar og var nú ekki nema rúm klukkustund. En þá fórum við með Hilmar Atla til læknis og amma Guðný var heima með Júlíu Huld. Hilmar Atli er með það sem kallast linur barki en þá eru brjóskin í barkanum lin og leggjast saman þegar hann dregur andann. Þessu fylgja töluverð hljóð þegar hann andar og oft er andadrátturinn hjá honum ansi skrykkjóttur. Læknirinn sagði að þetta angraði nú oftast foreldrana meira og að þetta muni þroskast hjá honum en geti tekið allaveganna fyrsta árið.
6 vikna skoðunin kom bara vel út, lækninum sem skoðaði þau fannst gaman að því hvað þau væru mikið ólík, ekki bara andlistfall heldur vaxtarlagið líka. Í skoðuninni var ákveðið að við færum með Júlíu Huld til sjúkraþjálfara til að liðka upp á hálsinn. Þau hafa bæði ríkjandi átt sem þau horfa í en það er erfiðara fyrir hana að ná að líta í hina áttina. Við erum nú þegar búin að fara einu sinni með hana og eigum að koma aftur í þessari viku. Við lærðum smá æfingar sem við getum notað á hana en sumt vorum við nú þegar byrjuð á að gera.
Þau voru enn ekki nógu duglega að sofa á daginn og fórum við því með þau í Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun til að sjá hvort það myndi hjálpa þeim eitthvað meira. Þetta var svo sem engin töfralausn gegn óværðinni en þau eru þó farin að ná núna að sofa oftar svona einn lengri lúr á daginn en þess á milli er þetta nú svona upp og ofan. En við sáum heilmikin mun á þeim varðandi það að horfa ekki alltaf í sömu áttina, Hilmar Atli er farin að sofa líka aðeins með höfuðið til vinstri og Júlía Huld gat snúið höfðinu lengra án þess að þurfa að snúa búknum eins með.
Didda amma var hjá okkur í þrjár vikur, hún var hjá okkur á daginn og fór svo oftast niður til Þóreyjar Örnu og fjölskyldu seinnipartinn eða á kvöldin. Það var voða gott að hafa hana og létti heilmikið undir hjá okkur.
Síðan má nú ekki gleyma að þakka fyrir gjafir sem hafa verið sendar til okkar, við þökkum Ellu og fjölskyldu og eins Sigrúnu, Gunnari og kisunum í Hrútatungu fyrir sendinguna frá þeim.
Uppfært 12.mars
Vorum að setja inn myndir frá skírninni og tímabilinu 6 - 8 vikna
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
hæhæ takk fyrir síðas:* alltaf gaman að skoða :)
Posted by Elísabet K, 20/04/2009 5:24pm (1 ár síðan)
-
Gott að allt gengur vel.
Vonandi fer að komast meiri værð á krílin.
Það kemur stundum við þriggja mánaða aldurinn.
Knúsið þau í kaf frá mér. Þarf að fara að koma og fá að hnoðast aðeins.
kveðja
Guðbjörg föðursystir.Posted by Guðbjörg Kr., 17/03/2009 10:55pm (1 ár síðan)
-
Hæ hæ. Gaman að lesa sögur úr lífi ykkar. Það er augljóst að það er nóg að gera á ykkar bæ. Vonandi eru þið að líka að taka upp á vídjó geiflurnar hjá ykkur, ekki bara brosin hjá Júlíu Huld og Hilmari Atla.
Hlökkum til að hitta ykkur næst.
kv
DísaPosted by Dísa, 09/03/2009 9:19am (1 ár síðan)
-
Gaman að frétta af ykkur, maður kíkir alltaf reglulega við hérna. Vonandi að lúrarnir fari að lengjast og að það fari að koma einhver regla á svefninn hjá þeim.
Kveðjur úr Kastalanum
G+G+GPosted by Gerða, 08/03/2009 10:26pm (1 ár síðan)