2ja vikna

Skrifað 23.1.2009 21:27

Þá eru liðnar 2 vikur síðan að börnin komu í heiminn. Það er ekki hægt að segja annað en að þessar tvær vikur hafi verið ansi annasamar fyrir foreldrana. Börnin hafa verið dugleg að nærast en gengur verr að skila því út aftur. Þetta kostar sáran grátur og höfum við verið að prófa ýmislegt til að létta til með þeim.

Hjúkrunarfræðingur kom í heimsókn til okkar á miðvikudaginn og tók út börnin. Þau voru vigtuð og mæld. Daman er orðin 3060g og hefur þyngst um 320g síðan að við komum heim af spítalanum. Drengurinn er orðinn 2950g og hefur þyngst um 345g. Hjúkrunarfræðingurinn var mjög ánægð með þau og fannst þau dafna vel. 

Börnin voru böðuð í fyrsta sinn heima í þessari viku. Dömunni finnst ekki leiðinlegt að fara í bað og er alveg saliróleg en annað er að segja um drenginn. Finnst þetta bara frekar skelfilegt allt saman.  

Við vorum að setja inn myndir úr síðustu viku inn á mynasíðuna okkar, fyrir þá/þær sem hafa áhuga að skoða.




Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • Greinilegt að þau dafna vel systkinin, mér finnst þau hafa breyst heilmikið og þroskast af myndunum að dæma. Við verðum að fá að líta við einhverntímann á næstunni.
    GGG

    Posted by Gerða og co, 25/01/2009 5:41pm (3 ár síðan)

  • Hæ hæ voðalega gaman að fá að fylgjast með. Flottar myndir af flottu fólki :-)

    Posted by Ingimar, 24/01/2009 3:22pm (3 ár síðan)

  • Gaman að lesa um hvernig gengur og skoða myndir. Þau eru algjörar rúsínur.
    kveðja
    Dí og Frí

    Posted by Dísa, 24/01/2009 12:03pm (3 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu