3 mánaða +
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á 3 mánaða færsluna þó að börnin séu nú langt kominn í að verða 4 mánaða. Það er auðvitað alltaf eitthvað nýtt að gerast og hvert smá atvik er alveg stórmerkilegur atburður í augum foreldranna. Það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með þroska og framförum og hvað margt er ólíkt hjá þeim systkinunum. Það er ekki bara útlitið heldur hreyfa þau sig ólíkt, hjala ólíkt o.s.frv.
En já er ekki um að gera að deila með lesendum því sem er að gerast hjá þeim þessa dagana; Hilmar Atli er farin að halda höfði nokkuð vel upp þegar hann liggur á maganum, hann var byrjaður að ná að lyfta því aðeins en svo var bara eins og hann allt í einu fattaði að hann gæti þetta - hann sem hefur aldrei verið hrifinn af því að vera á maganum. Júlía Huld, sem hins vegar var farin að sofa á maganum um tíma, hefur lítin áhuga á því að vera sett á magann. Hún getur alveg haldið höfðinu uppi en verður alltaf reið þegar hún er sett á magann og svo svolítið móðguð eftir á : ) Hún var hins vegar fyrir nokkru síðan farin að sýna tilburði til að reyna að grípa um dót eða annað sem hún er að skoða. Þetta gengur alveg ágætlega hjá henni, hún er farin að ná taki einstaka sinnum og þá fer það auðvitað beina leið í munninn. Júlíu Huld finnst líka hendurnar sínar rosalega spennandi og oft fyndið að sjá hana alveg rangeygða við að skoða þær. Hilmar Atli er svona að byrja að reyna að teygja sig eftir dóti en hann er ekki eins spenntur fyrir að setja það allt upp í sig, að minnsta kosti ekki ennþá. Hann er líka farin að vinda svolítið upp á sig ef það er eitthvað spennandi til hliðar við hann þó hann ná ekki að velta sér.
Þegar þau urðu þriggja mánaða fórum við að setja þau í vagninum út á svalir að sofa, það var greinilega töfralausnin (að minnsta kosti að sinni) því allt í einu sváfu þau bara og sváfu. Svo síðan þá eru þau alltaf sett út að sofa á daginn, afi þeirra í sveitnni minntist nú á að þetta væri hálfgert hundalíf á greyjið börnunum því þau væru bara sett út við hvert tækifæri. Þannig að þau eru bara nokkuð dugleg að sofa, reyndar er ræs ansi snemma á morgnanna að mati foreldranna en það er oft svona upp úr kl 6.
Stórfjölskyldan dreif sig auðvitað í Hrútafjörðinn um páskana, það var fyrsta ferð tvíburanna þangað og var ósköp gott að komast aðeins heim í sveitina.
Á sumardaginn fyrsta fórum við öll á Selfoss til Dísu og Frímanns. Gerða, Gummi, Gunnar Þór og Sjonni voru þar líka og áttum við hinn besta dag saman.
Uppfært 28.apríl
Vorum að setja inn myndir frá þessu tímabili á myndasíðuna okkar
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Gaman að fá færslu um gullmolana ykkar og enn meira gaman að hitta ykkur um daginn. Sjáumst vonandi aftur sem fyrst.
Géin þrjúPosted by Gerða, 26/04/2009 10:30pm (1 ár síðan)
-
Nú er ekkert sem heitir nú þarf ég að fara að kíkja við að sjá molana stoppaði allt of stutt síðast.
Posted by Eyrún, 26/04/2009 10:20am (1 ár síðan)