32 vikur
Nú erum við komin á 32. viku á meðgöngu og enn er held ég alveg óhætt að segja að allt gangi bara nokkuð vel. Síðan við skrifuðum seinast erum við búin að fara í sónar, þar kom í ljós að A barnið (eins og það er alltaf kallað í öllum skoðunum) er komið í höfuðstöðu og það lofar góðu upp á að geta farið í fæðingu. B barnið (sem er þá efra barnið) er/var í þverlegu en í mæðraskoðun í gær taldi ljósmóðirin að það væri jafnvel eitthvað að reyna að troðast niður með hinu. Samkvæmt sónarnum voru börnin þá orðin á milli 1500-1700 grömm og ljósmóðirin sagði okkur í gær að það væri svona rétt yfir meðallagi.
Þrjú kvöld í seinustu viku og á mánudagskvöldið síðastliðið vorum við á tvíburanámskeiði hjá Miðstöð mæðraverndar. Það var bara mjög gagnlegt og fróðlegt enda farið yfir ansi margt og fengum við að sjá myndband sem sýnir tvíburafæðingar, bæði hefðbundna fæðingu og keisaraskurð. Á mánudagskvöldið fórum við í skoðunarferð á kvennadeildina, þ.e.a.s. meðgöngudeild, fæðingardeild, hreiðrið, sængurkvennadeild og vökudeild. Það var fínt að fá að sjá hvernig þetta er allt saman en ég komst nú að því þarna að ég hafði nú komið inn á allar deildirnar áður nema vökudeild. Enda fá held ég engir utanaðkomandi aðilar að fara þangað nema þeir sem koma á þetta námskeið.
Það kom að vísu örlítið bakslag í gær en þá hafði mér tekist að næla mér í ansi leiðinlega magakveisu. Ég var nú nokkuð veik í gærkvöldi og greinilega fljót að þorna en það getur víst valdið samdráttum. Þannig að þegar aðeins voru orðnar fimm mínútur á milli samdrátta rétt fyrir klukkan tvö í nótt þorðum við ekki öðru en að fá að koma niður á fæðingardeild. Þetta var að vísu alveg verkjalaust enda kom í ljós að þetta var bara vegna veikindanna en ekki fæðing að fara af stað. Ég fékk bara strax vökva í æð og var svo fljótlega færð niður á meðgöngudeild og er þar enn. Ég var komin með hitavellu líka svo ég verð hér að minnsta kosti til morguns. Birkir er nú búin að stjana við mig og kom í dag með tölvuna og því upplagt að henda inn nokkrum línum. Mestan hluta af þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég verið með vökvann í æð og því dregið stöng með pokanum á eftir mér hvert sem ég fer. Fyrir þá sem muna eftir Heislubælinu þá er ég nú búin að glotta yfir því í dag að mig vanti bara kolluna og bláa sloppinn til að vera orðin eins og hún Sigríður.... já og kannski fölsku tennurnar líka ;)
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Hvað er að frétta af litlu krílunum - eru þau ekki ennþá að stefna á að verða nýársbörnin og halda kyrru fyrir þangað til ;) ;)
Vonandi hafið þið það gott
kv. Andrea BóelPosted by Andrea Bóel, 11/12/2008 11:23am (2 ár síðan)
-
Æji.... gott að þú ert hress.
Farðu rosalega vel með þig.
Knús á ykkur...... öll
Guðbjörg sem er að verða föðursystir og brosir allan hringinn :)Posted by Guðbjörg Kr., 03/12/2008 5:32pm (2 ár síðan)
-
Farðu nú vel með þig stelpa, við fylgjumst með , biðjum að heilsa. kv'Arnina og Elísabet
Posted by Árnína, 02/12/2008 4:14am (2 ár síðan)
-
Góðan bata skvís :) Gott að krílin hafa það gott.
Posted by Elín , 01/12/2008 12:14pm (2 ár síðan)
-
Hæ hæ,
fylgist með þér bæði hérna og í gegnum Þóreyju Örnu. Vona að þú hafir það gott.
kv. Sigga og coPosted by Sigfríður, 01/12/2008 9:25am (2 ár síðan)
-
Hæ hæ,
takk fyrir kveðjurnar. Ég kom heim á föstudag og er öll að koma til - er að byggja upp orku og matarlyst aftur. En þetta var nú ekki svo alvarlegt, vantaði bara vökva og næringu og það var nú farið voða vel með okkur þarna á spítalanum.Posted by Sóley Lára, 30/11/2008 12:50pm (2 ár síðan)
-
Hugsa til ykkar:) Láttu thér batna, dugleg ad drekka:) Bestu kvedjur Sirry Markhofda.
Posted by Sirrý Markhofda, 29/11/2008 1:50pm (2 ár síðan)
-
Hæ, vonandi ertu orðin hress af pestinni. Hafðu það sem allra best. knús á ykkur öll
Posted by Harpa Georgs, 29/11/2008 1:25pm (2 ár síðan)
-
Hæ skvís.... úff ég fékk pínu sjokk þegar ég var að lesa... vonandi er þér farið að líða betur og komin heim.
Kv. Family po SelfossPosted by Dísa, 29/11/2008 12:39pm (2 ár síðan)
-
Láttu þér nú batna fljótt og njóttu þess að láta stjana svolítið við þig.
Kveðja úr HólminumPosted by Guðlaug Helga, 28/11/2008 6:51pm (2 ár síðan)