37 1/2 vika
Núna eru komnar 37 og hálf vika á meðgöngunni og enn allt með kyrrum kjörum. S.L. sagði mér þann 29. des að það væri stutt í það að börnin mín myndu koma í heiminn. Einhverjir samdráttarverkir voru í gangi þá og fram til kl. 12 á gamlárskveldi. Eftir það datt allt í dúnalogn. Sennilega bara smá áramótagleði í bumbunni. Af því að þau vildu ekki koma í heiminn 30. des þá var bara fínt að þau komu ekki í heiminn 31. des. og 1. jan. Núna mega þau alveg fara koma en eins og staðan er núna þá eru börnin ekkert á leiðinni út. Ég er farinn að drösla S.L. í búðir til að fá hreyfingu á þetta hjá henni en lítill árangur af því ennþá.

Við mældum bumbuna af gamni um daginn, fólk er alltaf að segja við S.L. að þetta sé nú ekki stór kúla en hún er nú samt að rúma 2 einstaklinga sem eru hvor um sig rúmlega 11 merkur, þegar við fórum í sónar 24. des. sl.
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Halló elskurnar og innilega til hamningju með börnin ykkar, þetta er stórkostlegt, tvö í einu, gangi ykkur vel og ég hlakka til að sjá þau og auðvitað ykkur líka, verður kannski í febrúar.
Posted by Inga frænka, tvíbura afasystir., 09/01/2009 11:26pm (3 ár síðan)
-
Elsku Birkir og Sóley, Innilega til hamingju með krílin tvö :) hlakka til að sjá myndir af litla frænda og frænku :) hafði það sem allra best. kveðja Rósa
Posted by Rósa, 09/01/2009 8:34pm (3 ár síðan)
-
Elsku Birkir og Sóley. Innilegar hamingjuóskir með börnin tvö. Hafið það sem allra best. Hlakka til að sjá myndir:)
Posted by Ingibjörg Eyrún, 09/01/2009 4:46pm (3 ár síðan)
-
Innilega til hamingju elsku Sóley og Birkir, hlakka til að fá að knúsa litlu snúllurnar :-)
Posted by Alda, 09/01/2009 4:44pm (3 ár síðan)
-
Til hamingju með litlu krílin og gangi ykkur sem allra best.
Kveðja Guðlaug Helga og Einar HafbergPosted by Guðlaug Helga, 09/01/2009 2:59pm (3 ár síðan)
-
Ha! Eru þau komin??? Innilega til hamingju og gangi ykkur rosa vel.
Hélt samt að ég fengi fyrsta símtalið - skil þetta nú ekki alveg;-)
Kveðja frá DK.Posted by Bóinn., 09/01/2009 2:58pm (3 ár síðan)
-
Innilega til hamingju með krílin ykkar!! Hafið það sem allra best:)
Posted by Bylgja, 09/01/2009 2:49pm (3 ár síðan)
-
Til hamingju með börnin, gangi ykkur vel:)
Posted by Eyrún, 09/01/2009 11:01am (3 ár síðan)
-
Til hamingju með gullmolana :)
Posted by Andrea Bóel, 09/01/2009 9:34am (3 ár síðan)
-
Innilega til hamingju með krílinn :)
Posted by Elín , 09/01/2009 8:10am (3 ár síðan)