3ja vikna

Skrifað 2.2.2009 16:59

Þá eru börnin orðin rúmlega 3ja vikna. Síðasta vika var sú annasamasta hingað til. Maginn virðist vera að pirra þau, þó hana meira og hefur það verið sár grátur á kvöldin. Yfir daginn hafa þau sofið í mjög stuttum törnum og oftar en ekki vaknað upp grátandi en næturnar hafa verið ágætar hingað til og við fengið að sofa í 2 - 3 tíma í senn. Til að róa magann fórum við og keyptum jurtadropa sem heita Skírnir. Við höfum verið að gefa þeim þá í von um að það lagi eitthvað en það er of snemmt ennþá að segja til um það. Krosslagðir fingur. 

Hjúkrunarfræðingurinn kom á mánudaginn í eftirlitsferð. Börnin voru vigtuð og mæld.  Prinsinn er búinn að ná systur sinni í þyngd og eru þau bæði núna 3220g. Hann hefur þá þyngst um 270g og hún um 160g á s.l. 5 dögum.

Pósturinn kom með pakka til krílanna frá Betu & Níní og Rósu & Ingva. Við þökkum kærlega fyrir þessar sendingar, þær eiga eftir að koma sér vel. 

Nokkrir gestir létu sjá sig; Anna Kristín & Óli voru í bænum, Árni Steindór, Jóhanna & Eva Björg komu spes frá Hveragerði og Hanna móðursystir & Anita áttu leið hjá þegar þær voru á leið upp stigann.

 

Myndir frá s.l. viku eru komnar inn á myndasíðuna okkar




Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • Halló dúllur :)
    Guð hvað þið eigið falleg börn :)
    Maður bara bráðnar og klukkurnar fara bara að klingja... heheh
    sí-jú l8r

    Posted by María, Mundi og Co, 04/02/2009 12:20am (2 ár síðan)

  • Til hamingju með litlu krílin. Þau eru algjört æði :-)

    Posted by Eygló T., 03/02/2009 6:11pm (2 ár síðan)

  • Hvenær má koma í skoðunarferð?

    Posted by Guðbjörg Kr., 03/02/2009 6:08pm (2 ár síðan)

  • oo tau eru svo saet, ekkert sma fyndid ad sja tau saman i ruminu, tad maetti halda ad tau vaeru siams! :o)
    hlakka til ad heyra nofnin
    heyrumst naest ;o)

    kv. Litla Svarta Mambo i Australiu...ekki Afriku

    Posted by Valey Sara , 03/02/2009 11:18am (2 ár síðan)


  • Gaman að fá rapport og myndir á viku fresti :) Þau eru svo yndisleg liltu krílinn. Ég hlakka til að fá að skoða þau við gott tækifæri.

    Posted by Elín , 03/02/2009 8:55am (2 ár síðan)

  • Nei , hún kom ekki:) Mér lídur eins og ommu, get skodad myndir af Guds gjofonum ykkar endalaust, thau dafna svo vel:) Mamman tharf ad fara ad fa sma orku drykk hun er ad verda svo litil:) Karlinn minn er út í Tékkland núna og ég bad hann um ad ath, med svona pela hitara. Látid mig vita ef thid erud búin ad fá svoleidis apparat, ef ekki bid ég hann um ad halda áfram ad leyta. Gangi allt áfram sem best, kossar og knúsar :) Sirry Markhofda.

    Posted by Sirry, 03/02/2009 12:47am (2 ár síðan)

  • Wow ěg var búin ad skrifa heila ritgerd vona ad hún fari inn

    Posted by Sirry, 03/02/2009 12:42am (2 ár síðan)

  • ekkert sma flottar myndir af litlu fallegu krílunum ykkar (nú er mitt barn allt í einu orðið RISAbarn hehehe)
    kærar kveðjur

    Posted by Katrín&co, 02/02/2009 10:27pm (2 ár síðan)

  • get endalaust skoðað myndir af þessum dúllum.kv til ykkar allra.Unnur Anna og co

    Posted by Unnur Anna, 02/02/2009 9:55pm (2 ár síðan)

  • Gott að heyra að allt gengur vel, svona fyrir utan smá magapirring. Vonandi eiga þessir dropar eftir að hjálpa þeim eitthvað, um að gera að finna eitthvað sem virkar. Systir mín keypti eitthvað sem kallast remidia/remidiur (litlar kúlur) hjá homopata og þær svínvirkuðu á dömuna hennar.

    Kveðja, Inga Rut

    Posted by Inga Rut, 02/02/2009 8:30pm (2 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu