3ja vikna

Skrifað 2.2.2009 16:59

Þá eru börnin orðin rúmlega 3ja vikna. Síðasta vika var sú annasamasta hingað til. Maginn virðist vera að pirra þau, þó hana meira og hefur það verið sár grátur á kvöldin. Yfir daginn hafa þau sofið í mjög stuttum törnum og oftar en ekki vaknað upp grátandi en næturnar hafa verið ágætar hingað til og við fengið að sofa í 2 - 3 tíma í senn. Til að róa magann fórum við og keyptum jurtadropa sem heita Skírnir. Við höfum verið að gefa þeim þá í von um að það lagi eitthvað en það er of snemmt ennþá að segja til um það. Krosslagðir fingur. 

Hjúkrunarfræðingurinn kom á mánudaginn í eftirlitsferð. Börnin voru vigtuð og mæld.  Prinsinn er búinn að ná systur sinni í þyngd og eru þau bæði núna 3220g. Hann hefur þá þyngst um 270g og hún um 160g á s.l. 5 dögum.

Pósturinn kom með pakka til krílanna frá Betu & Níní og Rósu & Ingva. Við þökkum kærlega fyrir þessar sendingar, þær eiga eftir að koma sér vel. 

Nokkrir gestir létu sjá sig; Anna Kristín & Óli voru í bænum, Árni Steindór, Jóhanna & Eva Björg komu spes frá Hveragerði og Hanna móðursystir & Anita áttu leið hjá þegar þær voru á leið upp stigann.

 

Myndir frá s.l. viku eru komnar inn á myndasíðuna okkar




Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • Gaman að skoða myndirnar af krúttkrökkunum. Hlökkum til að hitta ykkur næst.
    kv
    Dí og Frí

    Posted by Dísa, 02/02/2009 6:07pm (2 ár síðan)

  • Flókin reikningsdæmi hérna;-) hahhahaha!
    Þessi börn eru svo yndislega falleg að ég fæ bara fyrirvaraverki;-) hlakka til að koma og hitta ykkur öll!

    Posted by Anna Margrét Ólafsdóttir, 02/02/2009 5:24pm (2 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu