4 - 5 vikna

Skrifað 14.2.2009 15:13

Það er rétt að nota tækifærið meðan bæði börnin sofa og setja inn smá færslu. Það hefur einstaka sinnum gerst að þegar heimilisverkin eða annað sem þarf að sinna hefur safnast aðeins upp að foreldrarnir rjúka upp til handa og fóta þegar börnin sofa. En Birkir var svo myndarlegur að sinna heimilsstörfunum í dag með litla dömu í poka framan á sér (sem svaf vært undir óm ryksugunnar) þannig að mamman „hangir” nú á netinu.

Við fylgjumst auðvitað spennt með hversu vel börnin þyngjast og þegar þau voru að verða 4 vikna kom hjúkrunarfræðingurinn í heimsókn. Þá var Hilmar Atli komin fram úr systur sinni í þyngd og orðin 3600 g. en Júlía Huld var nú ekki langt á eftir og orðin 3550 g. Hjúkrunarfræðingurinn kom ekkert í þessari viku en er væntanlegur í næstu.

Eins og fram hefur komið þá létum við skíra seinasta laugardag og var þetta ósköp góður dagur. Ég var búin að hafa pínu fyrir því að finna spariföt á Hilmar Atla til að fara í þegar heim væri komið (og búið að sofna í skírnarkjólnum). Það var auðvitað nóg til af kjólum frá okkur systrunum og Elmu Hlín frænku á Júlíu Huld en frændurnir voru víst eitthvað stærri en Hilmar Atli þegar þeir fóru að vera í sparifötum ; ) En Dagbjört, nágranni okkar, reddaði okkur. Það kom svo í ljós að ég hefði kannski ekki þurft að vera að eltast við sparifötin því börnin sváfu bara mestalla skírnina af sér og kaffið á eftir líka.

Birkir átti svo að fara að vinna á mánudaginn en það frestaðist reyndar um tvo daga. Hann verður í hálfri vinnu núna í febrúar og mars og við vorum búin að ræða svolítið hvernig væri best að haga þessum fjórum tímum á dag sem hann yrði í burtu, hvenær dagsins væri best hann færi o.s.frv. þar sem nú færi ég að vera ein með börnin. Það er svona ekkert alltaf hlaupið að því að vera einn með þau því þau vilja bæði svolítið vera á handleggjunum á okkur. En þetta urðu aðeins fleiri en fjórir tímar seinasta mánudag sem Birkir var í „burtu” því hann vaknaði með magakveisu og var bara settur í sóttkví inn í herbergi. Þetta gekk nú allt vel og Birkir var orðin sæmileg hress seinnipartinn daginn eftir. Það var nú samt ósköp gott að amma Guðný kom aðeins um kvöldið og hjálpaði til.

Annars gengur þetta allt bara nokkuð vel hjá okkur held ég. Maginn er nú samt aðeins að hrjá þau bæði systkinin, það er reyndar ekki hægt að segja að þau séu eins og sum magakveisubörn sem eru óvær ákveðin tíma sólarhringsins heldur getur þetta verið á ýmsum tímum dagsins. En þetta er nú bara algengt hjá ungabörnum og mun lagast með tímanum.
Pósturinn kom með sendingu í gær og var þá kominn pakki frá Ollu ömmusystir og fjölskyldunni hennar, Við sendum auðvitað kærar þakkir til þeirra fyrir góða gjöf.




Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • Hæ hæ
    Er alltaf að tékka á síðunni ykkar. Gaman að lesa skemmtilegar færslur. Vonandi gengur allt vel.
    Knús á línuna
    Kv
    Selfossmærin

    Posted by Dísa, 28/02/2009 11:44am (2 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu