5 mánaða
Í dag fórum við í 5 mánaða skoðun þó að börnin séu reyndar aðeins rúmlega það. Skoðunin gekk bara vel og er Júlía Huld núna orðin 68,5 cm og 7440 gr en Hilmar Atli 69,5 cm og 7480 gr. Þau eru ótrúlega jöfn í þessum tölum en það skondna er að þau eru enn ekkert lík í vexti - spurning hvort þau verði það nokkuð... Júlía Huld svolítil bolla en varla að sjá fellingar á Hilmari Atla. En svona miðað við þessar meðal kúrfur þá eru þau mjög vel yfir henni í lengd og aðeins yfir í þyngd. Það var að minnsta kosti ljóst í seinustu viku að einhver vaxtakippur hafði átt sér stað þar sem fara varð í gegnum fataskápinn, tína úr ansi margt og bæta í nýrri stærð.
Í gær urðu þau tíðindi að systkinin fóru í búð í fyrsta sinn á ævinni. Nú og af því að það gekk bara nokkuð vel þá var búðarráp bara tekið með trukk og dýfu og farið í tvær búðir til viðbótar í dag. Þannig að nú er sem sagt búið að fjárfesta í tveimur matarstólum og tveimur bílstólum.
Þau eru auðvitað farin að hreyfa sig meira um en áður, að vísu ekki enn búin að ná tökum á að velta sér - sem hefur þó gerst svona óvart án þess að þau fatti hvað þau eru að gera - en þau sýna mikinn áhuga á því að komast áfram. Þegar legið er á maganum er mikið reynt að spyrna sér áfram en hendurnar fylgja ekki með og lítið gerist. Hilmari Atla tókst þó um daginn að komast tæpan hálfan meter aftur á bak (já já - hér á bæ er vel fylgst með öllu nýju - en ok þetta var ekki mælt nákvæmlega ;)
Núna eru þau bæði dugleg við að næla sér í dót sem er nálægt þeim og auðvitað fer allt í munninn. Það er stundum svolítill pirringur í gómunum og því gott að naga og naga.
Það er gaman að fylgjast með samskiptum milli þeirra systkinanna. Þau eru svolítið spennt fyrir að fylgjast með hvoru öðru en það sem er enn meira spennandi er dótið sem hitt er að skoða - já það er sem sagt strax byrjað. Stundum þegar þau liggja hlið við hlið á leikteppinu ná þau að stela dótinu frá hvoru öðru eða jafnvel toga í sama dótið.
Í maí fórum við auðvitað í sauðburðinn, kannski ekki beint mikil hjálp í manni en það mátti ekki láta sig vanta. Amma geymir hjá sér gamla kerru og einn vagn sem við fengum að nota í fjárhúsin og það var því prófað að sofa aðeins þar. Auðvitað fengu þau að skoða lamb en þrátt fyrir að vera aðeins spennt fyrst urðu þau pínu smeyk þegar það kom nálægt. Þetta verður nú sennilega mun meira spennandi að ári.
Stærsti viðburðurinn var nú samt núna um seinustu helgi en þá kom Valey Sara heim frá Ástralíu og sáu þau þá frænku sína í fyrsta sinn. Við vorum búin að bíða ansi spennt yfir því að fá hana heim.
Segjum þetta gott í bili en aldrei að vita nema að maður setji inn færlsu þegar þau verða 6 mánaða.
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Hæ var að kíkja á ykkur af því að einhvern vegin missi ég alltaf af ykkur í sveitinni, eitt skiptið lasin og svo blessaður sauðburðurinn.
Vona að það gangi vel með þessi yndislegu börn.
Hlakka svo til að hitta ykkur og vonandi verður það fljótlega.
Bestu kveðjur frá HvalshöfðaPosted by haddy, 27/07/2009 8:13pm (1 ár síðan)
-
ohh meiri dúllurnar.
Mig er farið að klægja í fingurna að koma og knúsa...
Posted by Guðbjörg Kr., 25/06/2009 8:31pm (1 ár síðan)
-
Skemmtilegar nýju myndirnar, svo notalegt hjá þeim í vagninum :) Þau eru algjörir gullmolar! kv. Elín
Posted by Elín, 19/06/2009 12:54am (1 ár síðan)