Bumbumynd 19. des
Þá er nú 35. vika langt komin og börnin væntanlega búin að vaxa vel og dafna. Við fórum í sónar á 33. viku og þá leit bara allt mjög vel út. Efra barnið mældist aðeins stærra eða um 9 merkur og það neðra rúmlega 8 merkur - þannig að þau eru nú engar svakalegar píslir. Þá sást einnig að báðir kollarnir snúa niður sem lofar góðu upp á að fara í fæðingu frekar en keisara. Ljósmóðirin sagði okkur í mæðraskoðun í seinustu viku að kollurinn á neðra barninu væri nánast skorðaður. Næst eigum við tíma í sónar á aðfangadag en þá verða komnar 36 vikur og það verður gaman að sjá hver áætluð stærð verður þá. Eftir það erum við komin á meðaltalsfæðingartíma á tvíburum svo þau gætu farið að birtast hvað úr hverju...
Við settum inn að gamni könnun um kynin, við erum hvorugt með neina sterka tilfinningu fyrir þessu og miðað við marga virðumst við eitthvað gamaldags að vilja ekki vita kynið fyrirfram. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr könnuninni. Guðjón frændi er alveg viss um að þetta séu tvær stelpur, hann hefur víst sjaldan haft rangt fyrir sér en hann var ekkert að horfa á kúluna við sinn spádóm, bara rétt leit framan í mig og sagðist viss. Þórey Arna er nú eitthvað búin að skipta um skoðun en hún segir núna tveir strákar því hjartslátturinn er svo svipaður og hjá hennar strákum. Við sjálf segjum held ég bara sem minnst.
Jólaundirbúningurinn er nú langt kominn, búið að ganga frá flestum gjöfunum og senda jólakortin. Innkaupin lenda helst á húsbóndanum þar sem húsmóðirin er orðin löt við að fara í búðir, hún reynir svona helst að vera ekki með mikinn hamagang til að reyna að halda börnunum nú sem lengst inni. Það er þó búið að undirbúa komu þeirra eitthvað; til dæmis þvo barnaföt, bleiur og sængurföt. Anna Kristín var svo almennileg að lána okkur meðal annars tvo ömmustóla og svo erum við komin með bílstól og ýmislegt fleira frá Birnu Hlín. Við fáum líka vöggur að láni en erum ekki komin með þær hingað heim. Við fórum í smá verslunarleiðangur um daginn og keyptum sængur, sængurver, bleiur, pela og svona ýmislegt sem er gott að eiga. Það er voða gott að geta hringt í vin ef maður er ekki alveg viss um hvað sé gott að eiga.
Svo er hérna ný bumbumynd sem einhverjir voru víst búnir að óska eftir.
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
Kæri Birkir til hamingju með daginn, hafið það gott öll. bless Elísabet og Árnína
Posted by Árnína, 30/12/2008 11:52pm (2 ár síðan)
-
Það er nú ekki að sjá á þér Sóley Lára mín að þú sért komin átta mánuði á leið af tvíburum, þú lítur ekkert smá vel út mín kæra, vona að það gangi allt vel og þau haldist inni fram yfir áramót þó svo að það væri örugglega gaman fyrir Birki að fá þá í afmælisgjöf!! Hlakka til að heyra frá ykkur, kveðja Solla og co
Posted by Sólrún Halla, 29/12/2008 11:04pm (2 ár síðan)
-
En gaman að sjá mynd af þér. Mikið líturðu vel út!
Gangi ykkur vel og hlakka til að sjá ykkur.
Kær kveðja,
EllenPosted by Ellen María, 29/12/2008 11:12am (2 ár síðan)
-
Jæja nú er bara að halda í sér í tvo daga í viðbót, ekki það ég væri alveg til í að börnin okkar yrðu á sama árinu :) Maður er orðinn hrikalega spenntur og fyndið til þess að hugsa að meðgangan hjá þér er orðin lengri heldur en var hjá mér.
Vonandi hafið þið það gott öllsömul...
Gerða, Gummi og Gunnar ÞórPosted by Gerða, 29/12/2008 10:22am (2 ár síðan)
-
Úlala þetta er að verða æsispennandi, líklega munu króarnir ekki láta á sér kræla fyrr en á nýju ári, ekki nema afmælisdagur pabbans verði fyrir valinu.
Spennó spennóPosted by Dísa, 28/12/2008 2:34pm (2 ár síðan)
-
Langflottust Sóley Lára mín :)
Vonandi höfðu þið það gott um jólin. Bíð spennt að fá fréttir. Kv, EddaPosted by Þórdís Edda Guðjónsdóttir, 26/12/2008 9:21pm (2 ár síðan)
-
Innilegar jólakveðjur til ykkar. Hafið það sem bezt yfir hátíðarnar. Kærar kveðjur héðan
Posted by Harpa Georgs, 26/12/2008 10:44am (2 ár síðan)
-
Ofsalega berð þú nú þessa óléttu vel Sóley Lára mín.
Bíð spennt og þið looooofið að láta mig vita ef eitthvað gerist.
Annars fer ég að verða manísk og hringja á hverjum degi og vera pirrandi :)Posted by Guðbjörg Kr., 25/12/2008 6:16pm (2 ár síðan)
-
Ég er líka bara að kíkja hér inn og athuga hvort að það sé ekki allt í sómanum hjá ykkur.
Ég vona að þið hafið átt ánægjulega jólahátíð og notið tímans saman - það verður nóg að gera áður en þið vitið af :)
Hlakka til að fá barn (börn) er oss fætt sms.....
mín spá er 2 dömur - það hafa bara verið að koma litlar prinsessur á þessu ári og ég er alveg viss um að núna verður engin undantekning.....Posted by Andrea Bóel, 25/12/2008 6:09pm (2 ár síðan)
-
ohh þetta er svo spennandi, hlakka til að fá símtal um miðja nótt ;) hvort sem það er nótt hjá mér eða þér hehe.
Þú lúkkar samt meira ólétt á hinni myndinni - gæti verið fataval ;)
En mín kæra systir, mágur og komandi börn. Ég sendi ykkur hugheilar jólakveðjur með von um góðan jólaanda, ég verð með ykkur hinu megin frá :)
Gleðilega jólahátíð og megi þið njóta jólanna saman.
Bestu jólakveðjur
Valey SaraPosted by Valey Sara Árnadóttir, 23/12/2008 10:56am (2 ár síðan)