28 vikur
Þá er meðgangan orðin 28 vikur en sá vikufjöldi er víst viss áfangi á tvíburameðgöngu. Við sem sagt hittum fæðingarlækni nú í vikunni og sagði hún okkur þessu, það eru ákveðnir áfangar sem miðað er við að gott sé að ná - 28 vikur, næst 32 og svo framvegis.
Það er nú nóg um að vera framundan hjá okkur því fyrir utan að hitta fæðingarlækni í þessari viku er mæðraskoðun í næstu og svo vaxtarsónar í vikunni þar á eftir. Síðan ætlum við að fara á tvíburanámskeið núna í nóvember sem tekur þrjú kvöld en það verður nú vonandi fróðlegt og skemmtilegt. Það var að minnsta kosti mjög gott að hitta fæðingarlækninn og fá upplýsingar um hvers er að vænta. Við til dæmis fengum að vita að í venjulegri tvíburafæðingu eru 6 aðilar viðstaddir (það er að segja auk foreldranna og tvíburanna ;) tvær ljósmæður sjá svona um það helsta en síðan eru tveir fæðingarlæknar og tveir barnalæknar sem koma að fæðingunni líka svo það verður nóg af fólki.
Nú þegar við fáum ekki lengur fríblöð í póstkassann (24 stundir eru ekki lengur gefnar út og við héldum fyrst að Fréttablaðið vissi ekki af því að Norðlingaholtið væri á höfðuborgarsvæðinu en komumst svo að því að það er bara blokkin okkar sem virðist ekki vera þar) þá kemur fátt annað en gluggapóstur inn um lúguna. Við vorum því voða spennt þegar við sáum að okkur hafði borist pakki en í honum reyndust vera tvenn pör af voða sætum litlum sokkum og vettlingum sem Níní og Elísabet höfðu sent og Níní prjónað handa börnunum. Við sendum auðvitað kærar þakkir til þeirra fyrir þetta. Þetta bættist í „fataskáp“ barnanna sem fyrir innihélt fjórar samfellur sem Þórey Arna og Valgeir gáfu okkur og bleijubuxur í nokkrum mismunandi stærðum. Bara gaman að því að það sé byrjað að tínast í skápinn en ég átti nú ekki endilega von á því þar sem enn er nokkuð í fæðinguna.