32 vikur
Nú erum við komin á 32. viku á meðgöngu og enn er held ég alveg óhætt að segja að allt gangi bara nokkuð vel. Síðan við skrifuðum seinast erum við búin að fara í sónar, þar kom í ljós að A barnið (eins og það er alltaf kallað í öllum skoðunum) er komið í höfuðstöðu og það lofar góðu upp á að geta farið í fæðingu. B barnið (sem er þá efra barnið) er/var í þverlegu en í mæðraskoðun í gær taldi ljósmóðirin að það væri jafnvel eitthvað að reyna að troðast niður með hinu. Samkvæmt sónarnum voru börnin þá orðin á milli 1500-1700 grömm og ljósmóðirin sagði okkur í gær að það væri svona rétt yfir meðallagi.
Þrjú kvöld í seinustu viku og á mánudagskvöldið síðastliðið vorum við á tvíburanámskeiði hjá Miðstöð mæðraverndar. Það var bara mjög gagnlegt og fróðlegt enda farið yfir ansi margt og fengum við að sjá myndband sem sýnir tvíburafæðingar, bæði hefðbundna fæðingu og keisaraskurð. Á mánudagskvöldið fórum við í skoðunarferð á kvennadeildina, þ.e.a.s. meðgöngudeild, fæðingardeild, hreiðrið, sængurkvennadeild og vökudeild. Það var fínt að fá að sjá hvernig þetta er allt saman en ég komst nú að því þarna að ég hafði nú komið inn á allar deildirnar áður nema vökudeild. Enda fá held ég engir utanaðkomandi aðilar að fara þangað nema þeir sem koma á þetta námskeið.
Það kom að vísu örlítið bakslag í gær en þá hafði mér tekist að næla mér í ansi leiðinlega magakveisu. Ég var nú nokkuð veik í gærkvöldi og greinilega fljót að þorna en það getur víst valdið samdráttum. Þannig að þegar aðeins voru orðnar fimm mínútur á milli samdrátta rétt fyrir klukkan tvö í nótt þorðum við ekki öðru en að fá að koma niður á fæðingardeild. Þetta var að vísu alveg verkjalaust enda kom í ljós að þetta var bara vegna veikindanna en ekki fæðing að fara af stað. Ég fékk bara strax vökva í æð og var svo fljótlega færð niður á meðgöngudeild og er þar enn. Ég var komin með hitavellu líka svo ég verð hér að minnsta kosti til morguns. Birkir er nú búin að stjana við mig og kom í dag með tölvuna og því upplagt að henda inn nokkrum línum. Mestan hluta af þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég verið með vökvann í æð og því dregið stöng með pokanum á eftir mér hvert sem ég fer. Fyrir þá sem muna eftir Heislubælinu þá er ég nú búin að glotta yfir því í dag að mig vanti bara kolluna og bláa sloppinn til að vera orðin eins og hún Sigríður.... já og kannski fölsku tennurnar líka ;)
