18. mánaða skoðun

Skrifað 29.8.2010 12:00

Við fórum með börnin í 18. mánaða skoðun um daginn. Það er ekki hægt að segja annað þau hafi dafnað og stækkað frá síðustu mælingum. Hilmar Atli hefur heldur betur spítt í og núna er munurinn á milli þeirra systkina sá mesti sem verið hefur, bæði í þyngd og stærð. Til gamans má geta þess að Júlía Huld þyngri við fæðingu. Í gegnum allar skoðanirnar hingað til hefur Hilmar Atli verið 0,5kg þyngri og ca. 1cm lengri en núna munar 1kg í þyngd og 3,3cm í lengd. 

Mælingarnar eru:

Hilmar Atli 12,43kg 85,5cm 

Júlía Huld 11,49kg 82,2cm