Þá er nú 35. vika langt komin og börnin væntanlega búin að vaxa vel og dafna. Við fórum í sónar á 33. viku og þá leit bara allt mjög vel út. Efra barnið mældist aðeins stærra eða um 9 merkur og það neðra rúmlega 8 merkur - þannig að þau eru nú engar svakalegar píslir. Þá sást einnig að báðir kollarnir snúa niður sem lofar góðu upp á að fara í fæðingu frekar en keisara. Ljósmóðirin sagði okkur í mæðraskoðun í seinustu viku að kollurinn á neðra barninu væri nánast skorðaður. Næst eigum við tíma í sónar á aðfangadag en þá verða komnar 36 vikur og það verður gaman að sjá hver áætluð stærð verður þá. Eftir það erum við komin á meðaltalsfæðingartíma á tvíburum svo þau gætu farið að birtast hvað úr hverju...
Við settum inn að gamni könnun um kynin, við erum hvorugt með neina sterka tilfinningu fyrir þessu og miðað við marga virðumst við eitthvað gamaldags að vilja ekki vita kynið fyrirfram. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr könnuninni. Guðjón frændi er alveg viss um að þetta séu tvær stelpur, hann hefur víst sjaldan haft rangt fyrir sér en hann var ekkert að horfa á kúluna við sinn spádóm, bara rétt leit framan í mig og sagðist viss. Þórey Arna er nú eitthvað búin að skipta um skoðun en hún segir núna tveir strákar því hjartslátturinn er svo svipaður og hjá hennar strákum. Við sjálf segjum held ég bara sem minnst.
Jólaundirbúningurinn er nú langt kominn, búið að ganga frá flestum gjöfunum og senda jólakortin. Innkaupin lenda helst á húsbóndanum þar sem húsmóðirin er orðin löt við að fara í búðir, hún reynir svona helst að vera ekki með mikinn hamagang til að reyna að halda börnunum nú sem lengst inni. Það er þó búið að undirbúa komu þeirra eitthvað; til dæmis þvo barnaföt, bleiur og sængurföt. Anna Kristín var svo almennileg að lána okkur meðal annars tvo ömmustóla og svo erum við komin með bílstól og ýmislegt fleira frá Birnu Hlín. Við fáum líka vöggur að láni en erum ekki komin með þær hingað heim. Við fórum í smá verslunarleiðangur um daginn og keyptum sængur, sængurver, bleiur, pela og svona ýmislegt sem er gott að eiga. Það er voða gott að geta hringt í vin ef maður er ekki alveg viss um hvað sé gott að eiga.
Svo er hérna ný bumbumynd sem einhverjir voru víst búnir að óska eftir.