Jeppatúr Fjallabak Nyrðra o.fl.
Dagana 9 - 11 ágúst skelltum við okkur í smá jeppatúr. Byrjuðum á því að kíkja á ljósmyndasýninguna hans Sigurjóns sem hann var með á Eyrarbakka. Síðan var haldið áfram með ströndinni að Urriðafossi. Á Hvolsvelli var svo stoppað í kaffi hjá Önnu Kristínu og Óla sem bentu okkur á að það væri mjög skemmtilegt að tjalda í Þakgili. Þegar í Vík var komið var ákveðið að kíkja á þetta Þakgil og tjalda ef að okkur litist á það. Þakgil er alveg magnaður staður og ég mæli eindregið með því að fólk taki smá krók á leið sína ef að það er statt í Vík í Mýrdal.
Á degi tvö var haldið upp Skaftártungur og inná Fjallabak Nyrðra. Komið var við í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður. Stefnan var sú að við ætluðum að tjalda í Landmannalaugum en þegar þangað kom sáum við það að Landmannalaugar var ekki staður sem okkur langaði að reka niður alla tjaldhælana okkar. Þannig að við gistum við Landmannahelli á "Soft camping" tjaldstæði eins og stóð á skiltunum sem á vegi okkar urðu.
Á degi þrjú fórum við frá Landmannahelli yfir Pokahryggi og inn í Hrafntinnusker. Þar sem vegurinn endaði við stóran snjórskafl í hlíðum Hrafntinnuskers var ákveðið að halda áfram labbandi. Löbbuðum við Hrafntinnuskerið þvert og endilangt og kíktum við í Höskuldsskála og að íshellinum. Þegar labbinu lauk ákváðum við að fara Rauðufossaleið sem liggur við Heklu hraun og þaðan upp á Landmannaleið. Eftir að komið var upp á Landmannaleið var stefnan tekin heim.
Fleiri myndir eru auðvitað í myndaalbúminu okkar!
Skrá athugasemd
Athugasemdir
Enginn hefur skrifað athugasemdir ennþá