Janúar - júní 2010
Fyrri hluti þessa árs hefur að mestu snúist um hversdagslega hluti s.s. vinna og skipta um bleijur.
Jan - apr:
Sóley Lára fór að vinna aftur eftir fæðingarorlof.
Sigurlaug kom suður í byrjun janúar og var hjá okkur í fram í apríl að sjá um ungana okkar.
Börnin áttu 1. árs afmæli.
Um páskana fórum við norður.
Veikindi herjuðu á börnin og var Júlía Huld með 38-40°C hita í 10 daga sem endaði síðan með sýklalyfja kúr.
Maí:
Krakkarnir byrjuðu hjá dagmömmu í byrjun maí og hefur það gengið rosalega fínt.
Árni lenti í slysi á fjórhjólinu sínu um miðjan maí þannig að við vorum fyrir norðan í sauðburði flestar helgar auk nokkurra daga í þeim mánuði.
Veikindi herjuðu á börnin í þetta sinn kvef pest.
Júní:
Sóley Lára ásamt fríðu föruneyti fór til Ástralíu til að vera við giftingu hjá Valeyju Söru.
Birkir & börn og Linda & börn fóru í helgarreisu til Vestmannaeyja í heimsókn til Guðnýjar og Sveins sem voru þar með íbúð á leigu
Hele familian fékk magapest.
Krakkarnir fengu hlaupabóluna.
Myndir frá þessu tímabili eru komnar inn á síðuna okkar. Myndir frá Ástralíu ferðinni koma vonandi fljótlega.