Þvælingur
Við höfum víst gert eitthvað aðeins meira í sumar en að kaupa nýjan bíl og selja þann gamla (þó það verði að sjálfsögðu einn af hápunktum ársins - mætti halda að það hefði aldrei neinn áður gert annað eins og að kaupa sér bíl - spenningurinn hefur verið svo mikill) Það eru komnar inn myndir úr seinasta rúntinum á Gamla Rauð og það var sko alvöru rúntur þar sem við fórum um Reykjanesið og enduðum svo á að fara "rallýleiðina" við Djúpavatn. Farið hefur verið í fleiri veiðiferðir en í þeim voru allir of uppteknir við að fiska til að taka myndir. Birkir fór í 4 daga í Veiðivötn og við skelltum okkur með Hrútatungufjölskyldunni upp á Arnarvatnsheiði í einn dag. Um seinustu helgi var svo útilega með ML hópnum og vorum við 2 nætur rétt við Grímstaði í Landeyjunum í mjög fínu veðri (ótrúlegt en satt). Við tókum síðan smá útúrdúrsrúnt um Fljótshlíðina á leiðinni heim og eru komnar inn myndir frá þessari helgi. Enjoy BogS