Krítarferð

Skrifað 11.10.2006 00:06

Þetta er nú meiri letin en jæja vorum að setja inn myndir sem voru teknar 4 - 11 sept á Krít og Santorini. Við hjónaleysin skelltum okkur í vikuferð til Krítar í byrjun september. Þetta var hin besta ferð sól og 30°C + alla dagana nema einn en þá var yfir 30°C en þungskýjað. Margt var gert á þessum stutta tíma. Byrjuðum á því að fara í skipulagðan túr um Chania með gæd á þriðjudagseftirmiðdegi. Á miðvikudeginum var þvælst um gamla bæinn í Chanina. Á fimmtudeginum tókum við bílaleigubíl og keyrðum yfir á suður strönd krítar. Föstudagurinn var leti dagur sem endaði með Grískukvöldi á hótelinu okkar þar sem hótelstýran eldaði dýrindis Grískan mat. Hápunktur ferðarinnar er sennilega 20klst ferðalag til Santorini á laugardeginum. Við fórum á Krítverska ferðaskrifstofu og pöntuðum okkur ferðina. En eitthvað gekk þeim illa að segja okkur hvar átti að pikka okkur upp um nóttina, þannig að litlu mátti muna að við hefðum misst af rútunni. Sunnudagurinn átti að vera sólbaðsdagur en þar sem lítið fór fyrir sólinni þá uðru sumir minna brúnir en tilstóð. Haldið var svo heim á leið á mánudeginum. Enjoy BogS