Fluttningur
Skrifað 29.12.2006 22:34
Við hjónaleysin fjárfestum í nýrri íbúð í nóvember. Byrjað var á því að brjóta niður einn vegg, sparslað og málað. Fengum Árna til að setja flísar á forstofu og þvottahús. Ottó, Sveinn, Steini, Tóti og Valgeir komu svo og hjálpuðu okkur við að setja parket á gólfin. Þann 9. desember mætti svo her manns og hjálpuðu okkur að flytja. Myndir af ferlinu eru komnar á netið og má finna hér; Nýja heimilisfangið okkar er Helluvað 1-5. Enjoy BogS