Gleðileg jól

Skrifað 24.12.2007 12:58

Við erum að sjálfsögðu, eins og venjulega, fyrir norðan á okkar uppeldisslóðum. Lítið breytist í okkar jólahögum þótt að við séum orðin hjónó og erum við á sitthvorum staðnum þar sem jólasteikinni og pökkunum verða gerð góð skil. Samkvæmt öllum venjum þá hittumst við seint í kvöld á Bálkastöðum þar sem fer þá fram gjafa- og kortasýning. Á morgun (jóladag) verður svo sennilega farið uppí Laxárdal til Imbu og Steina í miðdegiskaffi. Kvöldinu verður svo slúttað með kveldmat á Bálkastöðum. Á annan í jólum verður svo brunað í bæinn því að Birkir þarf að fara vinna á milli hátíðanna. Jólakveðjur Birkir og Sóley Lára

 Gifting Eyþórs og Hildar

Skrifað 24.11.2007 22:36

Eyþór og Hildur gengu í það heilaga þann 24. ágúst. Athöfnin fór fram í Innri-Njarðvíkur kirkju. Veislan var svo haldin í Lionssalnum í Njarðvík.

 

 

 

 Steggjun Eyþórs

Skrifað 8.11.2007 23:22

Þann 17. ágúst var Eyþór steggjaður. Byrjað var að senda hann í listflug. Eftir það lá leiðin í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum þar sem leystar voru nokkrar þrautir. Eftir allt adrenalín flæðið var farið út að borða á Fjörukránni. Eftir mat voru nokkrir pöbbar heimsóttir bæði á Höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Engar myndir voru teknar eftir adrenalíngarðinn en það var gert viljandi. Myndirnar hefðu hvort sem er ekki verið birtingarhæfar ;) Enjoy BogS

 Sagan endalausa af Símanum

Skrifað 6.11.2007 00:00

Eins og þeir sem eiga leið inn á þessa síðu reglulega hafa tekið eftir, þá er hún búin að liggja niðri um helgina.

Síminn tók upp á því, alveg óumbeðinn, að loka á ADSL-ið hjá mér. Þetta er í annað skiptið í haust sem þeir
gera mig netlausan ("Nei, þetta er ekki vegna þess að ég stæði í einhverjum skuldum við þá").

Þeir byrjuðu á því í sumar að setja inn auka ADSL áskrift inn á símareikninginn minn. Þegar ég hringdi og sagði
þeim það að þetta væri ekki rétt og vildi láta fjarlægja þetta af reikningnum mínum, þá var það ekkert mál.
En þegar ég kom heim þá var ekkert net. Eftir endalausar hringingar í þjónustuverið og á fleiri staði komst netið loksins aftur í gang, þá búið að vera niðri í ca. 10 daga.

Og svo kom október símareikningurinn og jú aftur búið að bæta inn auka ADSL áskrift. Ég hringdi í Símann og
eins og áður þá var ekkert mál að fjarlægja þetta af símareikningnum mínum. Nokkrir dagar liðu og þá eins og áður aftur búið að loka á netið hjá mér. Þannig að með þessu tókst þeim að gera mig netlausann frá fimmtudegi fram á mánudag. Á föstudaginn eyddum við Sóley Lára 1 1/2 klst í símanum að tala við þjónustuverið. Þetta gekk meira að segja þannig fyrir sig að ég var beðinn um að bíða í smá stund en svo liðu 30 mínútur þangað til að ég gafst upp á biðinni og enda heyrðist ekki meira frá þessum þjónustufulltrúa. Maður var að verða frekar pirraður á þessari vitleysu.


Núna segja þeir að allt sem komið í lag og ég verði ekki fyrir óþægindum aftur. Þannig að það er bara að vona að þessir "snillingar" hætti að bæta inn áskriftum á símareikninginn minn svo að ég fái að hafa netið í friði, það er jú verið að borga fyrir það.

kv.
Birkir netlausi

 Elvar Hrafn

Skrifað 9.10.2007 22:43

Þann 15. ágúst sl. eignuðust Þórey Arna og Valgeir myndar strák. Okkur var boðið að koma í heimsókn fljótlega eftir fæðinguna því , stóra systirin, Elma Hlín vildi fá að heilsa upp á litla bróður. 15. september var svo snáðinn skírður og fékk hann nafnið Elvar Hrafn. Smelltum við nokkrum myndum af öllu saman og settum inn í albúmin okkar. Enjoy BogS


Loksins, loksins tókst mér að koma draslinu aftur í gang. Leit ekkert gæfulega út á tímabili, hélt að ég væri búinn að tapa öllu. En sem betur fer þá var til backup af dótinu síðan í ágúst sem að bjargaði öllu. Notaði tækifærið og setti inn myndir frá því að við, Dísa, Frímann og Gerða fórum á Helgafell, fyrir ofan Hafnarfjörð.

 

 

 

 

 Bálki 07.07.07

Skrifað 16.9.2007 00:27

Helgina 6-8. júlí var haldið uppá 25 ára búskapar afmæli Árna og Sigurlaugar. Í leiðinni haldin útskriftarveisla fyrir Valeyju Söru. Fullt af fólki lét sjá sig og mikið fjör. Byrjað var á því á laugardeginum að labba upp að Svartafossi í Bískálará. Síðan var farið í leiki. Í kvöldmatinn var Sigurlaug búin að elda kraftmikla kjötsúpu sem einnig var neitt svona rétt fyrir svefninn. Kvöldinu var svo slúttað með söng og gleði Myndir af herlegheitunum er hægt að finna í myndaalbúminu okkar; Enjoy BogS

 Brúðkaup

Skrifað 14.7.2007 17:48

Þá kom loksins að því að við gengum í það heilaga. Athöfnin fór fram í Árbæjarkirkju þann 23. júní. Sr. Þór Hauksson gaf okkur saman í mjög svo skemmtilegri athöfn, þar sem saman fór góð blanda af hátíðleika og húmor. Eftir athöfnina var svo farið í myndatöku. Veislan var haldin í Fáksheimilinu í Víðidal þar sem boðið var upp á 3ja rétta Hrútfirskt grillveisluborð. Veislan stóð langt fram eftir kveldi með skemmtiatriðum og söng. Botnin í veisluna sló svo hljómsveit Danna Chokko sem spilaði langt fram eftir nóttu og hélt uppi miklu stuði. Daginn eftir mættu svo foreldrar og systkini til að fylgjast með pakka opnun. Okkur langar að þakka öllum þeim sem komu að þessu með okkur og hjálpuðu okkur að láta þetta verða að veruleika. Einnig langar okkur að þakka fyrir allar gjafirnar og skeytin sem við fengum. Í vikunni eftir brúðkaupið þá fengum við lánaðan húsbíllinn hjá Guðnýju og Sveini. Farið var á Vestfirðina og fínu veðri þar sem við komum við í öllum bæjarkjörnum Vestfjarða ásamt því að kíkja á Rauðasand og út að Látrabjargi. Myndir að brúðkaupinu koma hægt og rólega inn á myndaalbúmið, því nóg er magnið af myndunum sem við þurfum að fara í gegnum.

Uppfært: 10. ágúst

Var að setja inn restina af myndunum frá brúðkaupinu

Takk fyrir okkur Hr. Birkir og Frú Sóley Lára

 

 Flugferð með Frímanni

Skrifað 14.5.2007 21:26

Frímann bauð Birki með sér í flug yfir suðurlandi 11. maí. Flogið var frá Rvk á Þingvöll þaðan yfir Skjaldbreið að Geysi í Haukadal. Síðan á Flúðir, Hellu, Stoksseyri og lent á Selfossi. Eftir smá stopp var flogið í bæinn. Auðvitað var myndavélin með í för og teknar nokkrar myndir þið getið séð þær hér Enjoy BogS

 Útskriftar-, páska- og fermingarmyndir

Skrifað 1.5.2007 23:34

Vorum að bæta við nokkrum myndum í myndaalbúmið. Fórum í útskriftarveislu til Gerðu í janúar. Svo komu páskarnir og nokkrum súkkulaði eggjum var slátrað. Inga Hrund bauð okkur í fermingarveilsuna sína þann 21. apríl og á sunnudaginn fórum við í fermingarveislu til Elísabetu, systur Birkis, á Skagaströnd. Enjoy BogS

1 2