Glöggt er gests augað ...

Skrifað 26.3.2007 16:30

Rakst á þessa mynd um daginn. Bara verð að deila þessu með ykkur.

Sjá mynd.

Það er greinilega ekki bara náttúrufegurð Hrútafjarðar sem útlendingar hafa gaman að taka myndir af ;)

 Ströng helgi

Skrifað 18.3.2007 23:07

Helgin sem var að líða er búin að vera ágætlega ströng. Okkur var boðið í tvær veislur um helgina. Byrjuðum á því að fara á Akureyri á laugardeginum þar sem Valey Sara og Björgvin héldu upp á 20. ára afmæli sín. Á sunnudeginu var svo brunað snemma í bæinn og mætt í skírn Emilíu og útskriftar- og afmælisveislu Elvars. Emilía var skírð í Laugarneskirkju. Elvar var að klára læknanám í Danmörku og náði einnig þeim merka áfanga að verða 30. ára í janúar síðastliðnum. Hægt er að sjá myndir hér Enjoy BogS

 Útskrift Sóleyjar Láru

Skrifað 13.3.2007 23:05

Þann 24. febrúar útskrifaðist Sóley Lára sem Bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands. Útskriftin var í Háskólabíói og síðan var fjölskyldunni ásamt Hrútatungusystkinum boðið í smá át heima hjá okkur. Núna er verið að uppfæra myndaalbúmið og getur það tekið einhverjum breytingum á næstu vikum. Myndir frá útskriftinni og veislunni má finna hér Enjoy. BogS