Brúðkaup

Skrifað 14.7.2007 17:48

Þá kom loksins að því að við gengum í það heilaga. Athöfnin fór fram í Árbæjarkirkju þann 23. júní. Sr. Þór Hauksson gaf okkur saman í mjög svo skemmtilegri athöfn, þar sem saman fór góð blanda af hátíðleika og húmor. Eftir athöfnina var svo farið í myndatöku. Veislan var haldin í Fáksheimilinu í Víðidal þar sem boðið var upp á 3ja rétta Hrútfirskt grillveisluborð. Veislan stóð langt fram eftir kveldi með skemmtiatriðum og söng. Botnin í veisluna sló svo hljómsveit Danna Chokko sem spilaði langt fram eftir nóttu og hélt uppi miklu stuði. Daginn eftir mættu svo foreldrar og systkini til að fylgjast með pakka opnun. Okkur langar að þakka öllum þeim sem komu að þessu með okkur og hjálpuðu okkur að láta þetta verða að veruleika. Einnig langar okkur að þakka fyrir allar gjafirnar og skeytin sem við fengum. Í vikunni eftir brúðkaupið þá fengum við lánaðan húsbíllinn hjá Guðnýju og Sveini. Farið var á Vestfirðina og fínu veðri þar sem við komum við í öllum bæjarkjörnum Vestfjarða ásamt því að kíkja á Rauðasand og út að Látrabjargi. Myndir að brúðkaupinu koma hægt og rólega inn á myndaalbúmið, því nóg er magnið af myndunum sem við þurfum að fara í gegnum.

Uppfært: 10. ágúst

Var að setja inn restina af myndunum frá brúðkaupinu

Takk fyrir okkur Hr. Birkir og Frú Sóley Lára