Gifting Eyþórs og Hildar

Skrifað 24.11.2007 22:36

Eyþór og Hildur gengu í það heilaga þann 24. ágúst. Athöfnin fór fram í Innri-Njarðvíkur kirkju. Veislan var svo haldin í Lionssalnum í Njarðvík.

 

 

 

 Steggjun Eyþórs

Skrifað 8.11.2007 23:22

Þann 17. ágúst var Eyþór steggjaður. Byrjað var að senda hann í listflug. Eftir það lá leiðin í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum þar sem leystar voru nokkrar þrautir. Eftir allt adrenalín flæðið var farið út að borða á Fjörukránni. Eftir mat voru nokkrir pöbbar heimsóttir bæði á Höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Engar myndir voru teknar eftir adrenalíngarðinn en það var gert viljandi. Myndirnar hefðu hvort sem er ekki verið birtingarhæfar ;) Enjoy BogS

 Sagan endalausa af Símanum

Skrifað 6.11.2007 00:00

Eins og þeir sem eiga leið inn á þessa síðu reglulega hafa tekið eftir, þá er hún búin að liggja niðri um helgina.

Síminn tók upp á því, alveg óumbeðinn, að loka á ADSL-ið hjá mér. Þetta er í annað skiptið í haust sem þeir
gera mig netlausan ("Nei, þetta er ekki vegna þess að ég stæði í einhverjum skuldum við þá").

Þeir byrjuðu á því í sumar að setja inn auka ADSL áskrift inn á símareikninginn minn. Þegar ég hringdi og sagði
þeim það að þetta væri ekki rétt og vildi láta fjarlægja þetta af reikningnum mínum, þá var það ekkert mál.
En þegar ég kom heim þá var ekkert net. Eftir endalausar hringingar í þjónustuverið og á fleiri staði komst netið loksins aftur í gang, þá búið að vera niðri í ca. 10 daga.

Og svo kom október símareikningurinn og jú aftur búið að bæta inn auka ADSL áskrift. Ég hringdi í Símann og
eins og áður þá var ekkert mál að fjarlægja þetta af símareikningnum mínum. Nokkrir dagar liðu og þá eins og áður aftur búið að loka á netið hjá mér. Þannig að með þessu tókst þeim að gera mig netlausann frá fimmtudegi fram á mánudag. Á föstudaginn eyddum við Sóley Lára 1 1/2 klst í símanum að tala við þjónustuverið. Þetta gekk meira að segja þannig fyrir sig að ég var beðinn um að bíða í smá stund en svo liðu 30 mínútur þangað til að ég gafst upp á biðinni og enda heyrðist ekki meira frá þessum þjónustufulltrúa. Maður var að verða frekar pirraður á þessari vitleysu.


Núna segja þeir að allt sem komið í lag og ég verði ekki fyrir óþægindum aftur. Þannig að það er bara að vona að þessir "snillingar" hætti að bæta inn áskriftum á símareikninginn minn svo að ég fái að hafa netið í friði, það er jú verið að borga fyrir það.

kv.
Birkir netlausi