Myndir ágúst - nóv

Skrifað 26.12.2008 16:42

Var að setja inn nokkrar myndir héðan og þaðan frá tímabilinu ágúst - nóvember. Á þessum tímabili fórum við í 2 veiðiferðir, berjamó, Brúarslútt, móttöku á handboltalandsliðinu, heimalandasmölun og 2 brúðkaup.

Veiðiferðirnar voru báðar í Laxá og þar sem SL fékk meðal annars Maríulaxinn sinn. Skruppum í berjamó upp í Bakkasel ásamt Sigurlaugu, þóreyju Örnu og Elmu Hlín.  Brúarslúttið var haldið í Brúarskála rétt áður en hann var rifinn og mættu þar fyrrverandi starfsmenn og ásamt nokkrum mökum.

 

Eftir að handboltalandsliðið vann til silfurverðlauna var haldin rosa móttaka sem við kíktum á. Hin árlega smalahelgi var svo á Bálkastöðum með að venju fjölda manns.

Guðlaug Helga og Einar héldu sitt brúðkaup þann 23. ágúst og

Einar frændi og Ósk sitt þann 15. nóvember. Það var 5ta brúðkaupið sem að við förum í á þessu ári.

 Bang Gang

Skrifað 19.12.2008 09:07

Ég og Ingþór frændi skelltum okkur á Bang Gang tónleika í gærkveldi á Nasa. Þetta voru hinir ágætistónleikar nema að hljóðmaðurinn var ekki alveg að standa sig í stykkinu. Það var endalaust eitthvað auka suðhljóð, trommurnar alltof háar og svo heyrðist ekki alltaf nóg í þeim sem var í aðalhlutverki hverju sinni. Samt fínir tónleikar og Barði í fínu stuði.

Bang Gang sendi frá sér Plötuna Ghosts from the past í ár. Þar sem ég hef verið mikill sukker fyrir þægilegri popp/rokk (kassagítar) tónlist síðustu ár þá er þetta plata sem ég mæli með. Þægileg tónlist með flottum melódíum.

Ef þú hefur áhuga á að hlusta á smá sýnishorn af plötunni þá er hægt að gera það hér 

 Dagur íslenskrar tónlistar - frí tónlist

Skrifað 12.12.2008 00:31

Í dag er dagur íslenskrar tónlistar (skilst mér). Það eru tvö fyrirtæki sem eru að bjóða upp á fría Íslenska tónlist í tilefni þess og einnig í tilefni kreppunnar.  Þetta er hið fínasta efni. Endilega notfærið ykkur þessi boð.

Fyrirtækin sem eru að bjóða þetta eru:

Tónlist.is

Kimi Records 

Smekkleysa

 Væntanlegir erfingjar

Skrifað 25.10.2008 11:21

Eins og kannski flestir vita sem eitthvað hafa samskipti við okkur þá eigum við von á okkar fyrstu börnum í kringum 20. janúar. Já, börnin eru 2 og ganga undir nöfnunum A og B þessa dagana. Við viljum viljum ekki vita kynið þannig að það verður bara spennandi að sjá hvað við fáum. Í tilefni þessa ákváðum við að búa okkur til Erfingja síðu þar sem þið getið séð nýjustu fréttir um meðgönguna og hugsanlega einhverjar myndir. 

 

Þið getið fundið Erfingja síðuna hérna en auk þess er linkur hjá hinum linkunum ;)

 Orð dagsins

Skrifað 20.10.2008 21:47

Þetta er það besta sem ég hef lesið lengi um stjórnvöld og Seðlabunkann 

"Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld"

- Robert Z. Aliber

 Full frétt hér.

 

 Bubbi Morthens

Skrifað 2.10.2008 23:40

 Það eru liðin fullt af árum síðan ég gafst upp á Bubba sem tónlistarmanni. Tónleikarnir sem ég hef farið á með honum í gengum ævina hafa alltaf verið fullir af misskemtilegum dópsögum og misskemmtilegum nýjum lögum sem hann hefur verið að kynna í það skiptið. Plöturnar hafa verið ansi misjafnar í seinni tíð og satt best að segja hætti ég að versla plöturnar hans eftir að hann gaf út Sögur af Landi sem kom út ef að ég man rétt um 1990.

Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa um Bubba hér er sú að mér var boðið á tónleika með honum í kvöld. Ég var mikið að spá í að fara ekki en ákvað að skella mér. Oddi bauð einhverjum útvöldum upp á tónleika með Bubba ásamt bandinu hans (Gummi P, Jakob Smári o.fl.) . Vinur hans Valgeirs fékk slatta af miðum þannig að mér var boðið með. Ég verð að segja að þetta voru draumatónleikarnir með honum. Kallinn spilaði í rúman 1,5 klst. nánast allt lög sem voru gefin út fyrir 1990. Það voru greinilega ekki allir að fíla þetta gamla dót og kallað var úr sal að spila Fallegur dagur. Bubbi sagðist nú ekkert hafa æft það en þeir skelltu sér í lagið og spiluðu 1-2 erindi og þar við sat. Bara haldið áfram að spila gamla efnið mér til mikillar ánægju. Sum lögin fengu, eins og alltaf, nýjan búning og að heyra Frelsarans slóð í spagettí vestra stíl var ansi flott. Einnig fékk að Agnes og Friðrik að hljóma en það lag sagði Bubbi að væri mjög langt siðan að hann hafi tekið og spilaði það yfirleitt ekki á tónleikum. Nokkrar ábreiður hljómuðu og opnaði hann kvöldið með All along the watchtower ásamt því að taka I fought the law sem er sennilega þektast sem ábreiða sem Clash tók á sínum tíma.

Þessir tónleikar voru hreint út sagt frábærir öll lögin sem að maður langar til að heyra kallinn spila og engar dópsögur. Bubbi sýndi það að hann kann ennþá að spila gömlu lögin sín og að hann er alveg hörku trúbadúr. Kóngurinn lifir :)

Þau lög sem ég man eftir að hafa hljómað í kvöld og kann að nefna:
Afgan, Frelsarans slóð (í Spagettí vestra útgáfu), Agnes og Friðrik, Fjólublátt flauel, Rómeó og Júlía, Ísbjarnarblús, Segulstöðvarblús, Gott að Elska, Fjórir naglar, Hrognin eru að koma, Kyrrlátt kvöld við fjörðinn (í country stíl), Sonneta, Blindsker, Fallegur dagur, Laugardagsmorgun, Stál og hnífur, Sumar konur, All along the watchtower, I fought the law

 

 

 

 Jeppatúr Fjallabak Nyrðra o.fl.

Skrifað 1.10.2008 23:16

Dagana 9 - 11 ágúst skelltum við okkur í smá jeppatúr. Byrjuðum á því að kíkja á ljósmyndasýninguna hans Sigurjóns sem hann var með á Eyrarbakka. Síðan var haldið áfram með ströndinni að Urriðafossi. Á Hvolsvelli var svo stoppað í kaffi hjá Önnu Kristínu og Óla sem bentu okkur á að það væri mjög skemmtilegt að tjalda í Þakgili. Þegar í Vík var komið var ákveðið að kíkja á þetta Þakgil og tjalda ef að okkur litist á það. Þakgil er alveg magnaður staður og ég mæli eindregið með því að fólk taki smá krók á leið sína ef að það er statt í Vík í Mýrdal.

Á degi tvö var haldið upp Skaftártungur og inná Fjallabak Nyrðra. Komið var við í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður. Stefnan var sú að við ætluðum að tjalda í Landmannalaugum en þegar þangað kom sáum við það að Landmannalaugar var ekki staður sem okkur langaði að reka niður alla tjaldhælana okkar. Þannig að við gistum við Landmannahelli á "Soft camping" tjaldstæði eins og stóð á skiltunum sem á vegi okkar urðu.

Á degi þrjú fórum við frá Landmannahelli yfir Pokahryggi og inn í Hrafntinnusker. Þar sem vegurinn endaði við stóran snjórskafl í hlíðum Hrafntinnuskers var ákveðið að halda áfram labbandi.  Löbbuðum við Hrafntinnuskerið þvert og endilangt og kíktum við í Höskuldsskála og að íshellinum. Þegar labbinu lauk ákváðum við að fara Rauðufossaleið sem liggur við Heklu hraun og þaðan upp á Landmannaleið. Eftir að komið var upp á Landmannaleið var stefnan tekin heim. 

 

Fleiri myndir eru auðvitað í myndaalbúminu okkar!

 Helgin 18 - 20 júlí

Skrifað 23.9.2008 22:22

Helgina 18 - 20 júlí var ansi mikið um að vera. Á föstudagskveldinu skellti ég mér á Kollsárættarmót sem var haldið að Skildi sem er rétt hjá Stykkishólmi. Það var alveg ágætis mæting á föstudeginum þannig að maður náði að hitta slatta af ættingjum sem að maður hefur ekki séð lengi.

 

Á laugardeginum var svo haldið í Borgarnes þar sem að vinafólk okkar Birna Hlín (vinkona SL frá Laugavatni) og Guðmundur giftu sig. Athöfnin fór fram í Borganeskirkju en veislan í félagsheimilinu Lyngbrekku sem er staðsett á Mýrunum. Þetta var bæði alveg stórskemmtilegt og alveg sérstaklega eftirminnilegt hvernig félagi Guðmundar lýsti steggjununni í orðum í stað þess að sýna myndir eða videó. 

Myndir af þessu má finna í myndaalbúminu okkar, að sjálfsögðu

 Metallica

Skrifað 9.9.2008 10:40

Fyrir svona gamla rokkhunda eins og mig þá er það alltaf spennandi þegar Metallica gefur út nýja plötu. Það er einmitt að gerast í þessari viku eða réttara sagt föstudaginn 12. sept. Ef þig langar að taka forskot á "sæluna" þá er hægt að hlusta á nokkur lagana hér. Ég verð nú bara að segja að fyrsta hlustun yljar mann um hjartaræturnar, því heyra má gamla takta. Þetta verður kanski ekki bezta platan þeirra en þetta lofar góðu og á örugglega eftir að venjast vel!

 Nýtt look

Skrifað 6.9.2008 01:17

Þá er komið að því, nýtt look og nýtt kerfi sem heldur utan um allt fyrir mann. Gamla heimasíðan og bakendakerfið var smíðað frá grunni af mér.  Bakendakerfið átti alltaf að verða svo rosalega flott að maður bara komst ekki í að gera það eins og maður vildi. Í staðinn ákvað ég að nota kerfi frá Silverstripe sem er líkast því eins og það sem ég ætlaði að gera. Eins og er eru allar gömlu færslunar ennþá í gamla kerfinu og ég er hreinlega ekki búinn að ákveða mig hvort að ég eyði tíma í að færa þær yfir, tíminn verður bara að leiða það í ljós.

Af okkur er annars allt gott að frétta, kúlan á Sóleyju Láru farin að verða ansi myndarleg þótt að það sé ennþá fullt af vikum þangað til að erfingjarnir koma í heiminn. Við erum búin að vera á flakki flest allar helgar í sumar og myndir af því fara að detta inn á næstu dögum.

1 2