Coca-Cola
Skrifað 10.5.2008 14:47
Bara smá fróðleikur um Coca-Cola. Eins og sagt er sjaldan er góð vísa of oft kveðin.
- Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki í bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
- Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
- Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
- Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
- Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.
- Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
- Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
- Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.
- Virka efnið í kók er phosphoric acid (fosfórsýra).
- Ph-gildið í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
- Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.
- Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér. Langar þig enn í hressandi dós af Coca-Cola?