Væntanlegir erfingjar

Skrifað 25.10.2008 11:21

Eins og kannski flestir vita sem eitthvað hafa samskipti við okkur þá eigum við von á okkar fyrstu börnum í kringum 20. janúar. Já, börnin eru 2 og ganga undir nöfnunum A og B þessa dagana. Við viljum viljum ekki vita kynið þannig að það verður bara spennandi að sjá hvað við fáum. Í tilefni þessa ákváðum við að búa okkur til Erfingja síðu þar sem þið getið séð nýjustu fréttir um meðgönguna og hugsanlega einhverjar myndir. 

 

Þið getið fundið Erfingja síðuna hérna en auk þess er linkur hjá hinum linkunum ;)

 Orð dagsins

Skrifað 20.10.2008 21:47

Þetta er það besta sem ég hef lesið lengi um stjórnvöld og Seðlabunkann 

"Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld"

- Robert Z. Aliber

 Full frétt hér.

 

 Bubbi Morthens

Skrifað 2.10.2008 23:40

 Það eru liðin fullt af árum síðan ég gafst upp á Bubba sem tónlistarmanni. Tónleikarnir sem ég hef farið á með honum í gengum ævina hafa alltaf verið fullir af misskemtilegum dópsögum og misskemmtilegum nýjum lögum sem hann hefur verið að kynna í það skiptið. Plöturnar hafa verið ansi misjafnar í seinni tíð og satt best að segja hætti ég að versla plöturnar hans eftir að hann gaf út Sögur af Landi sem kom út ef að ég man rétt um 1990.

Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa um Bubba hér er sú að mér var boðið á tónleika með honum í kvöld. Ég var mikið að spá í að fara ekki en ákvað að skella mér. Oddi bauð einhverjum útvöldum upp á tónleika með Bubba ásamt bandinu hans (Gummi P, Jakob Smári o.fl.) . Vinur hans Valgeirs fékk slatta af miðum þannig að mér var boðið með. Ég verð að segja að þetta voru draumatónleikarnir með honum. Kallinn spilaði í rúman 1,5 klst. nánast allt lög sem voru gefin út fyrir 1990. Það voru greinilega ekki allir að fíla þetta gamla dót og kallað var úr sal að spila Fallegur dagur. Bubbi sagðist nú ekkert hafa æft það en þeir skelltu sér í lagið og spiluðu 1-2 erindi og þar við sat. Bara haldið áfram að spila gamla efnið mér til mikillar ánægju. Sum lögin fengu, eins og alltaf, nýjan búning og að heyra Frelsarans slóð í spagettí vestra stíl var ansi flott. Einnig fékk að Agnes og Friðrik að hljóma en það lag sagði Bubbi að væri mjög langt siðan að hann hafi tekið og spilaði það yfirleitt ekki á tónleikum. Nokkrar ábreiður hljómuðu og opnaði hann kvöldið með All along the watchtower ásamt því að taka I fought the law sem er sennilega þektast sem ábreiða sem Clash tók á sínum tíma.

Þessir tónleikar voru hreint út sagt frábærir öll lögin sem að maður langar til að heyra kallinn spila og engar dópsögur. Bubbi sýndi það að hann kann ennþá að spila gömlu lögin sín og að hann er alveg hörku trúbadúr. Kóngurinn lifir :)

Þau lög sem ég man eftir að hafa hljómað í kvöld og kann að nefna:
Afgan, Frelsarans slóð (í Spagettí vestra útgáfu), Agnes og Friðrik, Fjólublátt flauel, Rómeó og Júlía, Ísbjarnarblús, Segulstöðvarblús, Gott að Elska, Fjórir naglar, Hrognin eru að koma, Kyrrlátt kvöld við fjörðinn (í country stíl), Sonneta, Blindsker, Fallegur dagur, Laugardagsmorgun, Stál og hnífur, Sumar konur, All along the watchtower, I fought the law

 

 

 

 Jeppatúr Fjallabak Nyrðra o.fl.

Skrifað 1.10.2008 23:16

Dagana 9 - 11 ágúst skelltum við okkur í smá jeppatúr. Byrjuðum á því að kíkja á ljósmyndasýninguna hans Sigurjóns sem hann var með á Eyrarbakka. Síðan var haldið áfram með ströndinni að Urriðafossi. Á Hvolsvelli var svo stoppað í kaffi hjá Önnu Kristínu og Óla sem bentu okkur á að það væri mjög skemmtilegt að tjalda í Þakgili. Þegar í Vík var komið var ákveðið að kíkja á þetta Þakgil og tjalda ef að okkur litist á það. Þakgil er alveg magnaður staður og ég mæli eindregið með því að fólk taki smá krók á leið sína ef að það er statt í Vík í Mýrdal.

Á degi tvö var haldið upp Skaftártungur og inná Fjallabak Nyrðra. Komið var við í Eldgjá og Ófærufoss skoðaður. Stefnan var sú að við ætluðum að tjalda í Landmannalaugum en þegar þangað kom sáum við það að Landmannalaugar var ekki staður sem okkur langaði að reka niður alla tjaldhælana okkar. Þannig að við gistum við Landmannahelli á "Soft camping" tjaldstæði eins og stóð á skiltunum sem á vegi okkar urðu.

Á degi þrjú fórum við frá Landmannahelli yfir Pokahryggi og inn í Hrafntinnusker. Þar sem vegurinn endaði við stóran snjórskafl í hlíðum Hrafntinnuskers var ákveðið að halda áfram labbandi.  Löbbuðum við Hrafntinnuskerið þvert og endilangt og kíktum við í Höskuldsskála og að íshellinum. Þegar labbinu lauk ákváðum við að fara Rauðufossaleið sem liggur við Heklu hraun og þaðan upp á Landmannaleið. Eftir að komið var upp á Landmannaleið var stefnan tekin heim. 

 

Fleiri myndir eru auðvitað í myndaalbúminu okkar!