Júní & Júlí

Skrifað 7.8.2009 20:04

Júní og júlí mánuðir voru frekar rólegir miðað við undan farin sumur, ekki mikið brugið sér af bæ. Við gerðum okkur þó dagamun og skruppum á Selfoss á 17. júní. Þann 19. júní fékk prinsessan þeirra Lindu og Ottós fékk nafnið Embla Rut. Anna Kristín og Óli buðu okkur ásamt Birnu Hlín og Guðmundi í bústað í Brekkuskógi. Sóley Lára var 1/2 mánuð heima í sveitinni með börnin í júlí og Birkir fór í viku vinnuferð til Árósa. Annars voru þetta bara týpískir dagar, allir eins.

 

 

 

 Myndir frá í apríl

Skrifað 28.4.2009 21:52

Jæja, þá er hægt að segja að við höfum farið að gera eitthvað annað heldur en að skipta á, hugga og svæfa ungabörn. Við vorum á töluverðum þvælingi í apríl, kanski til að vinna upp fyrstu mánuðina í árinu þar sem við vorum mjög busy heima hjá okkur.

Um páskana var brunað norður og verið þar í góðu yfirlæti, bæði á Bálkastöðum og á Borðeyri. Mæðginin voru nokkrum dögum lengur sveitinni eftir páska enda langþráð hjá Sóleyju Láru að komast heim. Birkir kom svo og sótti liðið og var farið suður á föstudeginum eftir páska.

Á Sumardaginn fyrsta var svo farið á Selfoss til Dísu og Frímanns. Þar mættu einnig Sjonni, Gerða, Gummi og Gunnar Þór. Sjonni eldaði hið fræga Sjonna pasta ofan í liðið og var greinilega atvinnumaður þar á ferð í eldamennskunni.

Á sunnudeginum 26. apríl fórum við svo til Grundarfjarðar þar sem okkur var boðið í fermingarveislu hjá Sólveigu Ástu. Hún er yngsta dóttir Ellu (systur Guðnýjar) og Sæa.

 Öryggisspurning

Skrifað 19.1.2009 12:38

Var að bæta inn smá reiknisdæmi fyrir þá/þær sem vilja skrifa athugasemdir á heimsíðuna okkar. Þetta er gert í öryggisskyni svo að það séu ekki tölvur sem skrifa athugasemdir á síðuna aðeins lifandi verur. Það er nauðsynlegt að svara reiknisdæminu svo að það sé hægt að senda inn athugasemd.

 Barnamyndir

Skrifað 18.1.2009 21:32

Nú eru komnar inn í albúmið fyrstu myndirnar af erfingjunum okkar. Sú breyting hefur nú verið gerð að búið er að læsa myndaalbúminu en ef þið smellið á myndir hér fyrir ofan fáið þið leiðbeiningar um hverning þið getið loggað ykkur inn. Ef þið hafið ekki svörin við spurningunum getið þið sent okkur tölvupóst á birkir@birkir.net