It aint over yet
Skrifað 6.3.2010 22:27
Svona eins og þeir vita sem heimsækja þessa síðu reglulega að þá hefur ekki mikið gerst á henni síðustu mánuði. Aðal ástæðan er sennilega sú að við vorum komin með uppí kok af því að halda henni við, net-andinn horfinn. Á tímabili var ég að spá í að loka henni, hætta að deila myndum og upplýsingum af fjölskyldunni með öðrum. Svo hætti maður við að hætta og fékk vott af net-andanum aftur. Þannig að ég setti inn nokkrar myndir til viðbótar í myndalbúmið. Núna er maður að reyna klára að setja inn þær myndir sem voru teknar seinnipart síðasta árs. Vonandi tekst það fyrr en seinna, allavegana áður en net-andinn hverfur aftur. Ég er ekki frá því að Facebook hafi þessi áhrif á mann ;)