Við Ottó skruppum einn góðviðris sunnudag í febrúar upp á Skálafell, bara svona til að taka myndir. Í mars buðu Gummi Waage og Jean okkur í brúðkaupið þeirra. Athöfnin var í Prestbakkakirkju og veislan í Hrútakaffi. Einn sunnudag í apríl löbbuðum við hjónin frá Borðeyri, eftir fjörunni, inn að Bálkastöðum. Elfar Árni systur sonur Birkis var fermdur þann 24. apríl. Við mættum í veisluna sem var haldin heima hjá Elfar Árna og gæddum okkur á kræsingunum.

Eins og alltaf þegar maður skrifar eitthvað hérna þá eru myndir frá þessu komnar í myndaalbúmið okkar.


Enjoy
BogS

 Coca-Cola

Skrifað 10.5.2008 14:47

Bara smá fróðleikur um Coca-Cola. Eins og sagt er sjaldan er góð vísa of oft kveðin.

  • Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki í bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
  • Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
  • Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
  • Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
  • Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.
  • Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
  • Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
  • Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.
  • Virka efnið í kók er phosphoric acid (fosfórsýra).
  • Ph-gildið í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
  • Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.
  • Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.
  • Langar þig enn í hressandi dós af Coca-Cola?

     

 Fleiri myndir frá 2007

Skrifað 5.4.2008 23:18

Þá erum við langt komin með að setja inn þær myndir frá árinu 2007 sem við ætlum að setja inn, meiri letin í manni. Allar myndir frá 2008 fara í nýja myndaalbúmið og er stefnan að hætta að bæta við í það gamla, erum orðinn frekar leið á því kerfi. En allavegana vorum að bæta við myndum frá 50. ára afmæli Dódíar (systur Sigurlaugar), myndum héðan og þaðan frá maí - des og svo jólamyndirnirnar. Kanski kominn tími til enda farið að styttast í jólin aftur ;) Í nýja myndaalbúmið eru komnar myndir frá jólaboði hjá mömmu í janúar og svo myndir frá steggjun Gumma Waage í febrúar

 Ekki dauð ennþá ...

Skrifað 8.3.2008 00:36

Jæja, það mætti halda að við værum dauð eða ekki hafa gert neitt síðan í ágúst lok en svo er nú ekki. Þetta flokkast sennilega undir helv... leti að vera ekki búinn að koma inn fleirri myndum á síðuna. Var að setja inn afmælismyndir úr 3 afmælum. Fyrst fórum við í 1. árs afmæli hjá Sveini Mikael 19. ágúst sl. Í nóvember fórum við í 2 afmæli fyrst hjá pabba en hann varð 50. ára 21. nóvember og síðan í 30. ára kúrekaafmæli hjá Valgeir 30. nóvember.

 

Enjoy BogS

 Gleðileg jól

Skrifað 24.12.2007 12:58

Við erum að sjálfsögðu, eins og venjulega, fyrir norðan á okkar uppeldisslóðum. Lítið breytist í okkar jólahögum þótt að við séum orðin hjónó og erum við á sitthvorum staðnum þar sem jólasteikinni og pökkunum verða gerð góð skil. Samkvæmt öllum venjum þá hittumst við seint í kvöld á Bálkastöðum þar sem fer þá fram gjafa- og kortasýning. Á morgun (jóladag) verður svo sennilega farið uppí Laxárdal til Imbu og Steina í miðdegiskaffi. Kvöldinu verður svo slúttað með kveldmat á Bálkastöðum. Á annan í jólum verður svo brunað í bæinn því að Birkir þarf að fara vinna á milli hátíðanna. Jólakveðjur Birkir og Sóley Lára

 Gifting Eyþórs og Hildar

Skrifað 24.11.2007 22:36

Eyþór og Hildur gengu í það heilaga þann 24. ágúst. Athöfnin fór fram í Innri-Njarðvíkur kirkju. Veislan var svo haldin í Lionssalnum í Njarðvík.

 

 

 

 Steggjun Eyþórs

Skrifað 8.11.2007 23:22

Þann 17. ágúst var Eyþór steggjaður. Byrjað var að senda hann í listflug. Eftir það lá leiðin í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum þar sem leystar voru nokkrar þrautir. Eftir allt adrenalín flæðið var farið út að borða á Fjörukránni. Eftir mat voru nokkrir pöbbar heimsóttir bæði á Höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Engar myndir voru teknar eftir adrenalíngarðinn en það var gert viljandi. Myndirnar hefðu hvort sem er ekki verið birtingarhæfar ;) Enjoy BogS

 Sagan endalausa af Símanum

Skrifað 6.11.2007 00:00

Eins og þeir sem eiga leið inn á þessa síðu reglulega hafa tekið eftir, þá er hún búin að liggja niðri um helgina.

Síminn tók upp á því, alveg óumbeðinn, að loka á ADSL-ið hjá mér. Þetta er í annað skiptið í haust sem þeir
gera mig netlausan ("Nei, þetta er ekki vegna þess að ég stæði í einhverjum skuldum við þá").

Þeir byrjuðu á því í sumar að setja inn auka ADSL áskrift inn á símareikninginn minn. Þegar ég hringdi og sagði
þeim það að þetta væri ekki rétt og vildi láta fjarlægja þetta af reikningnum mínum, þá var það ekkert mál.
En þegar ég kom heim þá var ekkert net. Eftir endalausar hringingar í þjónustuverið og á fleiri staði komst netið loksins aftur í gang, þá búið að vera niðri í ca. 10 daga.

Og svo kom október símareikningurinn og jú aftur búið að bæta inn auka ADSL áskrift. Ég hringdi í Símann og
eins og áður þá var ekkert mál að fjarlægja þetta af símareikningnum mínum. Nokkrir dagar liðu og þá eins og áður aftur búið að loka á netið hjá mér. Þannig að með þessu tókst þeim að gera mig netlausann frá fimmtudegi fram á mánudag. Á föstudaginn eyddum við Sóley Lára 1 1/2 klst í símanum að tala við þjónustuverið. Þetta gekk meira að segja þannig fyrir sig að ég var beðinn um að bíða í smá stund en svo liðu 30 mínútur þangað til að ég gafst upp á biðinni og enda heyrðist ekki meira frá þessum þjónustufulltrúa. Maður var að verða frekar pirraður á þessari vitleysu.


Núna segja þeir að allt sem komið í lag og ég verði ekki fyrir óþægindum aftur. Þannig að það er bara að vona að þessir "snillingar" hætti að bæta inn áskriftum á símareikninginn minn svo að ég fái að hafa netið í friði, það er jú verið að borga fyrir það.

kv.
Birkir netlausi

 Elvar Hrafn

Skrifað 9.10.2007 22:43

Þann 15. ágúst sl. eignuðust Þórey Arna og Valgeir myndar strák. Okkur var boðið að koma í heimsókn fljótlega eftir fæðinguna því , stóra systirin, Elma Hlín vildi fá að heilsa upp á litla bróður. 15. september var svo snáðinn skírður og fékk hann nafnið Elvar Hrafn. Smelltum við nokkrum myndum af öllu saman og settum inn í albúmin okkar. Enjoy BogS


Loksins, loksins tókst mér að koma draslinu aftur í gang. Leit ekkert gæfulega út á tímabili, hélt að ég væri búinn að tapa öllu. En sem betur fer þá var til backup af dótinu síðan í ágúst sem að bjargaði öllu. Notaði tækifærið og setti inn myndir frá því að við, Dísa, Frímann og Gerða fórum á Helgafell, fyrir ofan Hafnarfjörð.

 

 

 

 

1 2 3 4 5