Krítarferð

Skrifað 11.10.2006 00:06

Þetta er nú meiri letin en jæja vorum að setja inn myndir sem voru teknar 4 - 11 sept á Krít og Santorini. Við hjónaleysin skelltum okkur í vikuferð til Krítar í byrjun september. Þetta var hin besta ferð sól og 30°C + alla dagana nema einn en þá var yfir 30°C en þungskýjað. Margt var gert á þessum stutta tíma. Byrjuðum á því að fara í skipulagðan túr um Chania með gæd á þriðjudagseftirmiðdegi. Á miðvikudeginum var þvælst um gamla bæinn í Chanina. Á fimmtudeginum tókum við bílaleigubíl og keyrðum yfir á suður strönd krítar. Föstudagurinn var leti dagur sem endaði með Grískukvöldi á hótelinu okkar þar sem hótelstýran eldaði dýrindis Grískan mat. Hápunktur ferðarinnar er sennilega 20klst ferðalag til Santorini á laugardeginum. Við fórum á Krítverska ferðaskrifstofu og pöntuðum okkur ferðina. En eitthvað gekk þeim illa að segja okkur hvar átti að pikka okkur upp um nóttina, þannig að litlu mátti muna að við hefðum misst af rútunni. Sunnudagurinn átti að vera sólbaðsdagur en þar sem lítið fór fyrir sólinni þá uðru sumir minna brúnir en tilstóð. Haldið var svo heim á leið á mánudeginum. Enjoy BogS

 Nýr frændi

Skrifað 30.8.2006 01:49

Linda og Ottó eignuðust lítinn prins laugardaginn 19. ágúst. Auðvitað er búið að taka nokkrar myndir af piltinum  á heimasíðu pabba og mömmu (www.sgverk.com) og á myndasíðu Lindu og Ottós (www.birkir.net/lindaottisen)

 

kv. BogS

 Þvælingur

Skrifað 11.7.2006 21:57

Við höfum víst gert eitthvað aðeins meira í sumar en að kaupa nýjan bíl og selja þann gamla (þó það verði að sjálfsögðu einn af hápunktum ársins - mætti halda að það hefði aldrei neinn áður gert annað eins og að kaupa sér bíl - spenningurinn hefur verið svo mikill) Það eru komnar inn myndir úr seinasta rúntinum á Gamla Rauð og það var sko alvöru rúntur þar sem við fórum um Reykjanesið og enduðum svo á að fara "rallýleiðina" við Djúpavatn. Farið hefur verið í fleiri veiðiferðir en í þeim voru allir of uppteknir við að fiska til að taka myndir. Birkir fór í 4 daga í Veiðivötn og við skelltum okkur með Hrútatungufjölskyldunni upp á Arnarvatnsheiði í einn dag. Um seinustu helgi var svo útilega með ML hópnum og vorum við 2 nætur rétt við Grímstaði í Landeyjunum í mjög fínu veðri (ótrúlegt en satt). Við tókum síðan smá útúrdúrsrúnt um Fljótshlíðina á leiðinni heim og eru komnar inn myndir frá þessari helgi. Enjoy BogS

 Bílaskipti

Skrifað 20.6.2006 23:30

Nú á dögunum tókum við skötuhjúin upp á því að skipta um bíl. Fyrir valinu var að sjálfsögðu Audi A4 silfurgrár árgerð 2001.

Í tilefni þess seldum við ungum manni gamla rauð en þetta er hans fyrsti bíll. Óskum við honum velfarnaðar með "nýja" bílinn.

Fyrir dygga og góða þjónustu í 9 ár, þín verður sárt saknað
Gamli rauður 1997 - 2006


Kveðja.
Birkir og Sóley Lára

 Myndir - myndir - myndir

Skrifað 2.5.2006 23:00

Júbb það er satt, við erum búin að setja inn myndir, hver hefði trúað því. (við höfum sko góða afsökun.... héddna uhhh það er sko bara rosa mikið að gera eða já já what ever). Nema hvað það eru komnar myndir frá í febrúar, mars og apríl. Sumarbústaðaferð, óvissuferð, partý, fermingar og páskar.

 


Enjoy
BogS

 Loksins

Skrifað 1.3.2006 00:03

Jæja loksins komst það í verk að koma síðunni í þokkalegt stand. Frá því að við póstuðum einhverju hérna höfum við sett inn slatta af myndum sem ykkur er auðvitað velkomið að skoða.

 

 

 

 

1 2 3 4 5