Janúar - júní 2010

Skrifað 12.7.2010 12:45

Fyrri hluti þessa árs hefur að mestu snúist um hversdagslega hluti s.s. vinna og skipta um bleijur.

Jan - apr:
Sóley Lára fór að vinna aftur eftir fæðingarorlof.
Sigurlaug kom suður í byrjun janúar og var hjá okkur í fram í apríl að sjá um ungana okkar.
Börnin áttu 1. árs afmæli.
Um páskana fórum við norður.
Veikindi herjuðu á börnin og var Júlía Huld með 38-40°C hita í 10 daga sem endaði síðan með sýklalyfja kúr.

Maí: 
Krakkarnir byrjuðu hjá dagmömmu í byrjun maí og hefur það gengið rosalega fínt.
Árni lenti í slysi á fjórhjólinu sínu um miðjan maí þannig að við vorum fyrir norðan í sauðburði flestar helgar auk nokkurra daga í þeim mánuði.
Veikindi herjuðu á börnin í þetta sinn kvef pest.

Júní:
Sóley Lára ásamt fríðu föruneyti fór til Ástralíu til að vera við giftingu hjá Valeyju Söru.
Birkir & börn og Linda & börn fóru í helgarreisu til Vestmannaeyja í heimsókn til Guðnýjar og Sveins sem voru þar með íbúð á leigu
Hele familian fékk magapest.
Krakkarnir fengu hlaupabóluna.

Myndir frá þessu tímabili eru komnar inn á síðuna okkar. Myndir frá Ástralíu ferðinni koma vonandi fljótlega.







Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • Halló! Þetta er VTR mín. Skoðið. Þakka þér.
    http://www.youtube.com/watch?v=r5McGB552Dc

    Posted by tabahiko, 20/08/2011 9:51pm (6 mánuði síðan)

  • Gaman að skoða myndirnar, vonandi sjáumst við um helgina.

    Posted by Anna Kristín, 29/07/2010 1:45pm (2 ár síðan)

  • Dásamlegar myndir frá Aðalvíkurferðinni. Þetta hlýtur að hafa verið algjört æði!
    Krakkarnir ykkar eru líka algjör krútt :-)

    Posted by Eygló, 29/07/2010 8:48am (2 ár síðan)

  • Skemmtilegar nýju myndirnar. Ótrúlega mikil krútt tvíburarnir.
    Hittumst vonandi sem fyrst :)

    Posted by Dísa, 26/07/2010 10:05pm (2 ár síðan)

  • mikid er nu gaman ad fa ad sja myndir svona sem eru ekki FB myndir :o)

    Posted by Valey Sara , 14/07/2010 6:06am (2 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu