Komin heim
Í dag eru börnin orðin 10 daga gömul, við erum búin að vera heima í nokkra daga og það gengur held ég bara allt nokkuð vel.
Það var sem sagt ákveðið á þrettándanum að setja mig af stað kvöldið eftir svo við mættum kl 21 á fæðingardeildina og fengum þar að vera útaf fyrir okkur í herbergi. Við vorum búin undir að þetta gæti tekið nokkurn tíma að koma þessu af stað og því var okkur sagt að reyna að sofa eftir að ég hafði fengið fyrstu töfluna. Það þurfti þó ekki meira til í bili því hún kom samdráttum strax af stað og ég fékk ekki fleiri töflur. Um nóttina svaf Birkir bara við hliðina á mér í lazyboy og komið var inn til okkar 2 sinnum til að setja mig í mónitor.
Um morgunin komu svo tvær dömur sem voru með okkur fram eftir degi, önnur reynd ljósmóðir og hin læknanemi. Þá, eða kl 9, var belgurinn sprengdur og eftir það fór þetta nú að gerast hraðar. Ég þurfti að vera í mónitor nánast alveg eftir það og var því að mestu bundin við rúmið. B barnið (sem kom svo í ljós að var strákur) var svolítið að stríða okkur og var oft erfitt að finna hjartsláttinn hans. Ljósmóðirin var alveg viss um að það kæmi stelpa fyrst og síðan kæmi drengur. Við vorum færð inn á fæðingarstofu um kl 11 (þá sömu og Elma Hlín hennar Þóreyjar Örnu fæddist í) og svo leið nú dagurinn með nokkrum kvölum. Það var mælt með því að fá mænurótardeyfingu sérstaklega ef ske kynni að grípa þyrfti inn í og fara í bráðakeisara. Deyfingin virkaði að vísu lengi vel ekki nema vinstra meginn og því varð ég að liggja á hægri hliðinni í dágóða stund.
Eftir klukkan fjögur kom svo ný ljósmóðir og ljósmóðurnemi með henni sem voru hjá okkur þar til við fórum niður á sængurkvennadeild. Það þurfti sem sagt að vera inni hjá okkur alveg allan tímann til að fylgjast með öllu. Þegar að stóru stundinni var komið voru kallaðir til tveir fæðingarlæknar og einn barnalæknir sem tóku þátt í öllu með okkur. Annar fæðingarlæknirinn tók á móti börnunum meðan hinn hélt um seinna barnið til að reyna að stýra því rétta leið eins fljótt og fyrra barnið var fætt. Þá var ég í mónitor og síðan var sónartæki á mér til að fylgjast sem best með. Það kom þá í ljós að seinna barnið hafði snúið sér en það hafði alltaf verið í höfðustöðu. Ljósmóðirin hafði rétt fyrir sér og lítil stúlka kom í heiminn kl 18:27. Birkir fékk að klippa á naflastrenginn og ég fékk hana í fangið rétt sem snöggvast áður en barnalæknirinn fékk hana til skoðurnar. En síðan var fljótt komið að næstu fæðingu og þá sögðu þau mér að það kæmu tær fyrst. Ég tók þá eftir að með því að horfa upp í ljósið fyrir ofan rúmið gat ég séð það það sem var að gerast speglast, það hefur örugglega hjálpað mér því að drengurinn kom út með tærna fyrst og rassinn upp en stoppaði undir handarkrikunum. Þegar ég sá það ákvað ég að taka á öllu sem ég til ætti til að koma honum út í næstu lotu sem gekk eftir og hann var komin í heiminn kl 18:38. Það var ótrúleg upplifun að geta séð þetta gerast. Drengurinn var drifinn í hendurnar á barnalækninum en það var allt í lagi með hann, þetta hafði bara reynt svolítið á hann.
Eftir þetta tók við töluvert hnoð við að ná fylgjunum út sem endaði reyndar með því að ég þurfti að fara inn á skurðstofu til að það gengi og Birkir var því bara skilin eftir með litlu krílin. Ég var sem betur fer ekki svæfð svo ég gat aðeins notið þess loks að því loknu að knúsa litlu börnin. Mamma, Þórey Arna og Guðný fengu að reka inn nefið rétt í smá stund og síðan vorum við komin niður á sængurkvennadeild rétt fyrir miðnætti.
Við komum heim síðastliðinn miðvikudag og vorum því í vikudvöl á spítalanum. Birkir fékk að vera hjá mér allan tímann og við vorum bara með stofu útaf fyrir okkur. Eins og starfsfólkið er yndælt þarna þá var líka ósköp gott að komast loks heim. Þetta er alveg yndislegur tími en það er alveg óhætt að segja að það er nóg um að vera. En jæja nú er ég komin með unga ákveðna dömu á handlegginn og hætti því hér.
Skrá athugasemd
Athugasemdir
-
frábært að allt gekk vel og gengur vel.
Knúsið krílin. Hlakka til að sjá :)
kveðja
Guðbjörg og co.Posted by Guðbjörg Kr., 24/01/2009 8:26pm (1 ár síðan)
-
Til hamingju aftur með litlu kraftaverkin, þau eru æðislega sæt :-)
Kveðja úr AkraselinuPosted by Fjóla Guðjóns, 22/01/2009 11:39am (1 ár síðan)
-
já það tók mig smá tíma að fatta nýju myndirnar en ég er búin að því núna og er líka búin að fara vandlega yfir þessar frábæru myndir af fallegu börnunum ykkar. Kær kveðja til ykkar.
Posted by Katrín&co, 21/01/2009 10:36pm (1 ár síðan)
-
Til hamingju foreldrar, þau eru ekki smá falleg! Sýnist í fljótu bragði að litla snúllan sé nú svoldið lík þér Sóley og snáðinn líkur pabba sínum:) Þetta er yndislegt, vona að þau séu vær og góð svo þið fáið eitthverja hvíld inn á milli. Svo kemur maður nú kannski í heimsókn á næstu mánuðum og fær að sjá systkinin:)
Posted by Harpa Rut, 19/01/2009 3:36pm (1 ár síðan)
-
Þau eru yndisleg. Hlakka til að hitta þau.
Posted by Berglind, 19/01/2009 12:11pm (1 ár síðan)
-
Svakalega flottar myndir af ykkur, glæsilega fjölskylda. Gott að vita að þið eruð komin heim og vonandi gengur allt áfram vel.
Gerða og co.Posted by Gerða, 19/01/2009 11:33am (1 ár síðan)
-
Það er svo gaman að fá að fylgjast með ykkur. Gangi ykkur sem allra best.
Posted by Guðlaug Helga, 19/01/2009 10:21am (1 ár síðan)
-
Þau eru svooooo flott, skemmtileg myndin þar sem Birkir er að gefa báðum í einu.
Posted by Elín , 19/01/2009 12:00am (1 ár síðan)
-
gaman að fá fleiri fréttir, þetta eru engir smá gullmolar sem þú átt, hlakka til að sjá fleiri myndir af þeim
Posted by Katrín&co, 18/01/2009 10:31pm (1 ár síðan)