Myndir ágúst - nóv

Skrifað 26.12.2008 16:42

Var að setja inn nokkrar myndir héðan og þaðan frá tímabilinu ágúst - nóvember. Á þessum tímabili fórum við í 2 veiðiferðir, berjamó, Brúarslútt, móttöku á handboltalandsliðinu, heimalandasmölun og 2 brúðkaup.

Veiðiferðirnar voru báðar í Laxá og þar sem SL fékk meðal annars Maríulaxinn sinn. Skruppum í berjamó upp í Bakkasel ásamt Sigurlaugu, þóreyju Örnu og Elmu Hlín.  Brúarslúttið var haldið í Brúarskála rétt áður en hann var rifinn og mættu þar fyrrverandi starfsmenn og ásamt nokkrum mökum.

 

Eftir að handboltalandsliðið vann til silfurverðlauna var haldin rosa móttaka sem við kíktum á. Hin árlega smalahelgi var svo á Bálkastöðum með að venju fjölda manns.

Guðlaug Helga og Einar héldu sitt brúðkaup þann 23. ágúst og

Einar frændi og Ósk sitt þann 15. nóvember. Það var 5ta brúðkaupið sem að við förum í á þessu ári.




Skrá athugasemd

Athugasemdir

  • hey hjú! :o)
    gaman að sjá nýjar myndir, mættu alveg vera fleiri af bumbu ;o)
    hlakka til að fara að frá símtal :-o
    bestu kveðjur
    L-sys í útlandinu

    Posted by Valey Sara Árnadóttir, 04/01/2009 10:25am (2 ár síðan)

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu