Myndir frá í apríl

Skrifað 28.4.2009 21:52

Jæja, þá er hægt að segja að við höfum farið að gera eitthvað annað heldur en að skipta á, hugga og svæfa ungabörn. Við vorum á töluverðum þvælingi í apríl, kanski til að vinna upp fyrstu mánuðina í árinu þar sem við vorum mjög busy heima hjá okkur.

Um páskana var brunað norður og verið þar í góðu yfirlæti, bæði á Bálkastöðum og á Borðeyri. Mæðginin voru nokkrum dögum lengur sveitinni eftir páska enda langþráð hjá Sóleyju Láru að komast heim. Birkir kom svo og sótti liðið og var farið suður á föstudeginum eftir páska.

Á Sumardaginn fyrsta var svo farið á Selfoss til Dísu og Frímanns. Þar mættu einnig Sjonni, Gerða, Gummi og Gunnar Þór. Sjonni eldaði hið fræga Sjonna pasta ofan í liðið og var greinilega atvinnumaður þar á ferð í eldamennskunni.

Á sunnudeginum 26. apríl fórum við svo til Grundarfjarðar þar sem okkur var boðið í fermingarveislu hjá Sólveigu Ástu. Hún er yngsta dóttir Ellu (systur Guðnýjar) og Sæa.




Skrá athugasemd

Athugasemdir

Enginn hefur skrifað athugasemdir ennþá

RSS veita fyrir athugasemdir á þessari síðu