Ströng helgi
Skrifað 18.3.2007 23:07
Helgin sem var að líða er búin að vera ágætlega ströng. Okkur var boðið í tvær veislur um helgina. Byrjuðum á því að fara á Akureyri á laugardeginum þar sem Valey Sara og Björgvin héldu upp á 20. ára afmæli sín. Á sunnudeginu var svo brunað snemma í bæinn og mætt í skírn Emilíu og útskriftar- og afmælisveislu Elvars. Emilía var skírð í Laugarneskirkju. Elvar var að klára læknanám í Danmörku og náði einnig þeim merka áfanga að verða 30. ára í janúar síðastliðnum. Hægt er að sjá myndir hér Enjoy BogS
Skrá athugasemd
Athugasemdir
Enginn hefur skrifað athugasemdir ennþá