Maí og júní voru veislu mánuðir. Linda og Ottó giftu sig 6. maí, Hrund og Burkni skírðu Emelíu Ínu 18. maí, Dísa útskrifaðist frá HÍ með BA gráðu í Félagsfræði 14. júní. Birkir var svo sendur til Búlgaríu í 1/2 mánuð í lok júní. Strax eftir að hann kom heim þá var farið í bíltúr með Dísu og Frímanni.
Enjoy
BogS

Vinnan ákvað að senda Birki í 1/2 mánaðardvöl til Búlgaríu. Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem að Birkir fer einn að heiman og þar til svona "framandi" lands þá ákvað hann að skella upp smá bloggi um það sem fyrir augum ber. Þar sem þetta er vinnuferð þá verður sennilega lítið um skoðunarferðir en auðvitað verður tekið eitthvað tölt um bæinn.
Ef þú hefur áhuga á að lesa bullið í Birki þá er hægt að skoða það hérna
Enjoy
BogS

Birkir og Valgeir ásamt fríðu föruneyti fóru eina helgina í janúar í jeppaferð. Farið var í Veiðivötn og gist þar í stóra skálanum. Pattinn var pimbaður fyrir ferðina svo að hann myndi örugglega komast á leiðarenda. Sett voru 33" dekk undir og fullt af kösturum framan á bílinn svo að við gætum örugglega brætt skaflana með þeim ef þeir yrðu eitthvað illviðráðanlegir.
Valgeir tók slatta af myndum en þær er hægt að nálgast hér
Við Ottó skruppum einn góðviðris sunnudag í febrúar upp á Skálafell, bara svona til að taka myndir. Í mars buðu Gummi Waage og Jean okkur í brúðkaupið þeirra. Athöfnin var í Prestbakkakirkju og veislan í Hrútakaffi. Einn sunnudag í apríl löbbuðum við hjónin frá Borðeyri, eftir fjörunni, inn að Bálkastöðum. Elfar Árni systur sonur Birkis var fermdur þann 24. apríl. Við mættum í veisluna sem var haldin heima hjá Elfar Árna og gæddum okkur á kræsingunum.
Eins og alltaf þegar maður skrifar eitthvað hérna þá eru myndir frá þessu komnar í myndaalbúmið okkar.
Enjoy
BogS