3juli

Skemmtilegt, eða þannig. Í morgun þegar ég  mætti til vinnu var ég spurður að því hvort að ég hafi heyrt sprengingarnar fyrr um morguninn. Ég kannaðist ekki við neitt enda steinsofandi. Núna rétt áðan titraði byggingin hérna eins og það væri jarðskjálfti í gangi en það var út af sprengingum í geymslum hersins rétt utan við Sofia. Eldur kom upp þarna í morgun og búið að rýma allt svæðið í 6 km radius. Flugvellinum hérna í var einnig lokað. Hægt er að sjá fréttir um þetta (á ensku) hérna og hérna. Nú er bara að vona að þetta endi ekki með einhverju skelfilegu.

RUV var auðvitað með eitthvað um þetta en ég fann ekki linkinn fyrr en eftir langa leit. Sjá frétt

Þetta er fréttaritarinn Birkir sem talar frá Sofia