Föstudagur, laugardagur og sunnudagur

Jæja, maður er ennþá á lífi þó að ég hafi ekki skrifað mikið hérna síðustu dagana. Á fimmtudaginn var  birgðageymsla hersins að brenna rétt fyrir utan Sofia en sem betur fer fór það allt vel. Hefði getað farið illa hérna í Sofia ef þessu 20 tonn að sprengiefni hefðu sprungið öll í einu. Þær sprengingar sem urðu á fimtudagsmorguninn voru það öflugar að það brotnuðu rúður í nýju flugvallarbyggingunni hérna í Sofia en flugvöllurinn er í nokkra km fjarlægð frá birgðageymslunni. Svo á meðan birgðageymsla var að brenna þá kom jarðskjálfti hérna sem var c.a. 3.2 á richter. Herinn vildi ekki kannast við að það væri neitt meira að springa hjá þeim þannig að þetta var skráð sem jarðskjálfti. Fólkið hérna í Sofia var mjög skelkað yfir þessu og umferðin á fimmtudeginum mjög róleg.

Á föstudeginum var mikið stress í vinnunni. Við vorum að reyna klára ákveðið verkefni sem átti síðan að sýna útvöldum seinnipart dagsins. Ekki náðist að klára verkefnið þannig að sýningunni var frestað fram á mánudag. Á föstudagskveldinu fórum við nokkur hérna úr vinnunni út að borða á Pri Yafata  en það er þjóðlegur Búlgarskur veitingastaður, alveg ágætur bara. 

Á laugardeginum var farið í túristaferð. Peter úr vinnunni bauðst til að fara með mér í bæjar ferð á laugardeginum. Hann kom og sótti mig á hótelið um kl. 11. Við byrjuðum á að fara og skoða safnið í kjallara Aleksander Nevsky kirkjunnar. Þar er að finna fullt af kirkjulegum munun. Við ætluðum að fara inn í kirkjuna en það var ekki hægt sökum mannmergðar sem beið í röð eftir því að komast inn. Allir biðjast fyrir útaf þessum sprenginum á fimmtudeginum. Við kíktum inn í Rússneskukirkjuna hérna sem er ansi falleg bygging. Þaðan lá leið okkar í þjóðar listasafnið þeirra. Þar er að finna alveg helling að gömlum virkilega vel máluðum myndum frá öllum tíma Búlgaríu. Eftir þetta voru svo göturnar þræddar og skoðað í búðir og slappað af. Þetta var virkilega góður dagur og ekki slæmt að fá local mann sem nennti að dröslast með manni allan daginn og meira að segja í búðir líka. 

 Í dag sunnudag var lítið gert. Kíkti aðeins í vinnuna til að létta undir morgundeginum. Ég verlsaði mér Skipið eftir Stefán Mána á leiðinni út. Reif utan af henni plastið í gær og las til enda.  Verð nú að segja að ég þarf aðeins að glugga í hana aftur til að skilja endirinn betur. Annars ágætis lesning. Ég allavegana lagði hana ekki frá mér fyrr en hún var búin.