Þriðjudagurinn 8. júlí

Lítið er gert þessa dagana nema vinna og svo fara eitthvað út að borða á kvöldin. Í kvöld fór ég með 2 vinnufélögum og konu annars þeirra í centrið til að fá okkur að borða. Staðurinn sem þau völdu heitir Laguna og er mjög skemmtilegur. Hefur meðal annars stóran bakgarð með gosbrunn og fullt af plöntum, ansi hreint huggulegt. Svo skemmdi það ekki fyrir að hann bauð upp á flottan tertu matseðil . Auðvitað var prófuð pönnuköku terta í eftirrétt.