fimmtudagur26

Það var vaknað snemma (að íslenskum tíma) til að fara í vinnuna. Búlgaría er 3 klst á undan Íslandi í tíma þannig að þegar ég skröllti á fætur til að fá mér morgun mat um kl. 9:30 þá var klukkan bara 6:30 á Íslandi og maður hugsaði með hryllingi að þurfa að mæta í vinnuna á þessum tíma en þetta venst. Morgunmaturinn hérna á hótelinu stendur til kl. 10:30 en í morgun þá var eitthvað lið með saumavéla kynningu frá Brother þannig að ég mátti ekki vera mikið seinni til að fá eitthvað í gogginn.

 

copyright www.swan.bg

 Eftir smá snatt á hótelinu var farið í vinnuna til ITSS sem er dóttur fyrirtæki GoPro. ITSS er til húsa í Interpred eða World Trade Center eins og það er líka kallað. Það vill svo skemmtilega til að Interpred er bara hinu megin við götuna hjá hótelinu mínum þannig að maður er bara nokkrar mínútur að labba þangað. Þetta er hinn ágætasti vinnustaður með loftkælingu og ekki veitir af því hitinn hérna er í kringum 30°C í skugga. Það var ákveðið að taka langan vinnudag í dag sem endaði á því að horft var á leik Rússa og Spánverja á vinnustaðnum.