í Búlgaríu
News » fostudagur27
Komst að því í dag að maturinn hérna er ekki svo slæmur. Búlgarar hafa þetta fína salat sem samstendur mest úr gúrku og tómötum ásamt graslauk og einhverju fleiru sem að ég kann ekki að nefna. Yfir þetta allt saman er svo rifinn mjög mildur ostur. Einnig virðast þeir vera mjög hrifnir af kartöflum því í dag er ég bara búinn að borða einhverja kartöflurétti sem aðalrétt. Fyrst í vinnunni en þá var bætt nokkrum kjötbitum við kartöflurnar og síðan áðan þegar við Kostadin fórum út að borða þá valdi hann kartöflurétt sem var með beikonsneiðum og rifnum osti yfir. En þetta var ekki eins vont og þetta hljómar