Home sweet home

Jæja þá er maður loksins komin heim aftur.

Flogið var frá Sofia til London Hethrow og beðið þar eftir tengifluginu til Íslands í 5 klst.  Það besta við að taka tengiflug á Hethrow er sá að maður kemst í World of Whisky búðina til að versla sér alvöru Whisky.

Sofia og Búlgaría kom mér bara á óvart. Áður en maður fór út þá var maður með þá ímynd af Búlgaríu að allt væri drasli, húsin að hrynja, karlarnir tannlausir og kerlingarnar litlar, feitar og með krippu. Verð nú að segja veit nú ekki alveg hvaðan þessi imynd kom, sennilega haldið að gamla Sovet væri bara svona. En eins og ég sagði þá kom Sofia mér á óvart því allt þetta var þver öfugt farið. Auðvitað getur maður fundið hús sem eru hrörleg en hvaða borg er ekki með svoleiðis vandamál (sjáið bara Laugarveginn). Búlgararnir virðast vera frekar snyrtilegir og ekki var mikið um t.d. tyggjó klessur og annað drasl meðfram og á gangstéttum. Karlkynið þarna ekkert öðruvísi en í öðrum löndum en kvenkynið meiri hlutinn alveg tágrannur, hávaxið og strompandi sígarettur út í eitt. Það virtist vera meira um það að kvenfólkið reyki þarna en karlarnir.

Ég kíkti aðeins í búðir en fannst verðlagið ekkert spennandi. Til að fá samanburðinn á verðum þá verður maður auðvitað að skoða merkjavörur. Það sem ég man eftir er að t.d. Levis 501 buxur kosta þarna ca 13.000 ísl krónur og venjulegir plain stuttermabolir ca 1.500 ísl krónur  en að fara út að borða og taka leigubil kostar bara klink. Ég veit ekki alveg hvernig fólk á að fara lifa þarna í framtíðinni. Allt hefur hækkað mikið nema launin og er það þannig að normal laun eru ca. 30 - 60 þús. ísl krónur.  En þetta er auðvitað að gerast allstaðar.

Ef ykkur langar að heimsækja vinalegt fólk sem talar varla eitt orð í ensku, fólk sem býr til góðan mat, fara í verslanir þar sem verðlagið er svipað og á hérna klakanum og  bíða eftir tengiflugi í ca. 4-5 klst. á hvorri leið þá er þetta eitthvað sem ég mæli alveg með.