í Búlgaríu
News » laugardagurinn28
Það var þetta líka fína veður þegar maður dröslaðist á lappir þennan morguninn. Maður tölti hérna í næsta nágreni við hótelið að reyna finna sér eitthvað að éta enda morgun maturinn á hótelinu löngu búinn. Settist inn á eitthvað kaffihús hérna og fór að rýna í matseðilinn en skildi ekki bofs. Sem betur fer talaði þjónninn ensku þannig að ég fékk nánast það sem ég pantaði. Eftir átið skellti ég mér í vinnuna, alltaf gott að eiga auka klst. til að nota í frí heima. Kostadin kom við í vinnunni og saman skelltum við okkur í bæinn þar sem hann sýndi mér merkustu byggingarnar s.s. kirkju Alexander Nevsky ásamt þjóðleikhúsinu þeirra. Eftir að við höfðum étið nægju okkar á einhverjum veitingastað þá kíktum við á Backstage sem er lítill bar með lifandi tónlist. Þar var að spila hljómsveitin Mastilo, prýðisband sem spilaði þekktar ábreiður í bland við frumsamið efni.