man30juni

Lífið gengur bara sinn vanagang hérna í Búlgaríu. Bara langur vinnudagur, út að borða efir vinnu og síðan í bólið. Í kvöld var fyrir valinu Kínverskur veitingastaður. Maturinn þar eins og annarsstaðar sem ég hef borðað hérna, mjög góður.

Ég tók með mér Tópas að heiman, bara svona til að bjóða Búlgörsku vinnufélögunum upp á eitthvað islenskt. Viðbrögðin við honum voru æði misjöfn og það voru ekki allir sem vildu smakka. Það hefur enginn komið að borðinu mínu og beðið um annan umgang, það kanski segir sitt. Kostadin útskýrði fyrir mér að bragðið af Tópasinum væri skrítið fyrir Búlgarana. Minnti þá eitthvað tengt alkóhóli en mér fannst það bara léleg afsökun, ekki eins og maður hafi hætt að éta Tópas eftir að Tópas/Opal drykkirnir komu á markað.  Datt bara í hug þegar Quentin Tarantino var að tala um þessa drykki í spjallþætti Conan O'Brien.