midvikudagurinn25

Það var vaknað eldsnemma til að fara á völlin í flug til Frankfurt. Sóley Lára reif sig á fætur til að skutla mér og fór síðan beint í vinnuna eftir það.

Þegar til Frankfurt var komið þá tók við ca. 5 tíma bið til að ná tengiflugi til Sofia í Búlgaríu. Eins og við var að búast þá var seinkun á fluginu til Búlgaríu fyrst um 30 mín. en síðan 50 mínútur út í flugvél. Snillingurinn ég valdi auðvitað sæti við gluggann þegar ég var að tékka mig inn en dauðsá eftir því þegar inn í vélina var komið. Sætið sem ég fékk var svo mjótt og klest út við hliðar flugvélarinnar að ég komst með naumindum fyrir í því. Var þar að leiðandi að drepast í bakinu þegar til Sofia var komið. Flugið til Sofia gekk fínt þrátt fyrir mikið óveður í Evrópu þetta kvöld sem varð meira að segja til þess að margir misstu af nokkrum mínútum í leiknum (Þýskaland-Tyrkland). Flugvöllurinn í Sofia er lítill og snyrtilegur. Þegar ég var að bíða eftir töskunni minni þá kom annarslagið kona í hátalarakerfið sem er svo sem ekki til frásögufærandi nema áður en hún tók til máls þá kom þessi svakalegi þungi kirkjuklukku hljómur mynnti mig á einhverja spúkí draugamynd. 

Kostadin tók á móti mér á flugvellinum og saman tókum við þennan fína gamla Hyundai leigubíl, sem var í einhverju lamasessi því ekki voru falleg hljóðin frá bílnum þegar hann fór í ójöfnur, upp á  Latinka hótelið mitt. Þetta er alveg finasta hótel og mjög snyrtilegt og meira að segja frí nettenging.