sun29juni

Leti dagur. Sofið fram eftir öllu því það var farið seint að sofa kvöldið áður. Ákvað að skella mér í göngutúr í nágreni hótelsins, þurfti að finna hraðbanka og verslun svo að maður gæti haft eitthvað á hótelherberginu. Verslunin fannst rétt hjá hótelinu þannig að það verður ekki vandamál að ná sér í nauðsynjar á næstu dögum. Hitinn hérna er ekki fyrir mann sem alinn upp í norðan nepjunni í Hrútafirðinum. Þetta væri rosalega fínt ef að maður væri á strönd og gæti flatmagað en að vera í borg í þessum hita er ekkert sniðugt.  En svo kanski venst maður þessu og hættir þessu væli.  

Auðvitað var horft á úrslitaleikinn reyndar með Búlgörsku tali en það kom ekki að sök. Skildi alveg hvað var að gerast. Verð nú bara að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Þjóðverjana. Áttu varla eitt færi í leiknum. En auðvitað er þetta þannig að enginn spilar betur en andstæðingurinn leyfir. Var rosalega ánægður með Spanjólana að þeir skyldu hafa unnið. Þeir sýndu okkur frábæra knattspyrnu í mótinu.